Garðræktarnámskeið í samstarfi við HORTICUM menntafélag


Eins og á  síðastliðnu ári erum við með fjölbreytt framboð garðræktarnámskeiða í samstarfi við Horticum menntafélag enda hlutu námskeiðin mjög góða dóma. Námskeiðin sem eru í boði núna eru: Ræktun matjurta í heimilisgarðinum, Trjárækt á sumarhúsalóðum, Fáðu krydd í tilveruna: Námskeið um ræktun kryddjurta, Rósir og rósarækt og Safnhaugar í heimilisgörðum.