Ánægður útskriftarnemandi í Leiðsögunámi á háskólastigi
26.2.2010
Siv Friðleifsdóttir, fyrrum ráðherra, var í hóp fyrstu leiðsögumanna sem voru útskrifaðir þann 12. febrúar síðastliðinn af námsbrautinni Leiðsögunám á háskólastigi. Í viðtali við Pressuna segist Siv vera afar ánægð með námið: "Ég mæli hiklaust með þessu námi. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt. Ég hafði sérstaklega gaman af því að rifja jarðfræðina upp og kafa enn dýpra í hana, enda Íslands einstakt land út frá jarðfræðilegu sjónarhorni,“ segir Siv í viðtalinu sem má
lesa hér