Aukið samstarf við Starfsafl
26.2.2010
Starfsafl og Endurmenntun undirrituðu í vikunni samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfsmanna að námskeiðum Endurmenntunar.

Í samningnum kemur fram að sameiginlegt markmið Starfsafls og EHÍ er að auka alhliða og sértæka færni almennra starfsmanna í atvinnulífinu á höfuðborgarsvæðinu. Í því skyni munu EHÍ og Starfsafl auka samstarf sitt og kappkosta að bjóða fyrirtækjum, sem hafa almenna starfsmenn innan stéttarfélaga Starfsafls, símenntunarlausnir sem henta þörfum þeirra.
Starfsafl styrkir fyrirtæki til námskeiðahalds fyrir starfsmenn Flóabandalagsins (Efling, Hlíf, VSFK) og að jafnaði getur fyrirtæki reiknað með styrk frá Starfsafli sem nemur allt að 75% af útlögðum kostnaði. Endurmenntun sér um umsóknarferli fyrirtækja sem óska eftir því að sækja um styrk hjá Starfsafli en nánari upplýsingar um reglur vegna úthlutunar er að finna á heimasíðu Starfsafls
http://www.starfsafl.is