Vel heppnuð gæðastjórnunarráðstefna

27.5.2010

Það var fullt út úr dyrum á gæðastjórnunarráðstefnu Endurmenntunar og Stjórnvísi fimmtudaginn 27. maí 2010 og greinilega mikill áhugi á efninu. Ráðstefnan bar heitið „Umbætur í grunnstoðum samfélagsins – Hvernig getum vð nýtt gæðastjórnun?“. Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ setti ráðstefnuna og talaði um að nú væri tækifæri til umbóta og mikilvægt væri að nýta það. Fundarstjóri var Jón G. Hauksson, ritstjóri.

Hægt er að skoða slæðurnar frá ráðstefnunni hér:


Endurreisn gæðakerfisins - Saga frá Íslandsbanka
Jenný Dögg Björgvinsdóttir frá Íslandsbanka


Verktakar framtíðarinnar

Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri Íslenskra aðalverktaka


Gagnsæ og rekjanleg stjórnsýsla byggð á ferlum og innri úttektum

Svala Rún Sigurðardóttir, forstöðumaður ráðgjafasviðs FOCAL


Kostur úttekta?
Sigurður M. Harðarson, sérfræðingur hjá Nor Con ehf


Háskólanám í gæðastjórnun – til að gera umbætur í grunnstoðum samfélagsins

Dr. Helgi Þór Ingason, dósent við verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ