Fjölbreyttar námsbrautir á haustmisseri - Umsóknarfrestur til 30. maí
23.5.2011

Alls verða tíu námsbrautir í boði frá hausti 2011 hjá Endurmenntun og er fjölbreytnin afar mikil.
Mismunandi inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði í námsbrautirnar eru afar misjöfn, í vissum tilfellum eru engin inntökuskilyrði en í aðrar námsbrautir eru annað hvort stúdentspróf eða sambærileg menntun eða háskólagráða skilyrði fyrir inngöngu.
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Allir sem hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun fá inngöngu í námsbrautunum
Leiðsögunám á háskólastigi,
Verkefnastjórnun – Leiðtogaþjálfun,
Gæðastjórnun,
Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar,
Nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala
Háskólapróf
Námsbrautirnar
Fjölskyldumeðferð og Hugræn atferlismeðferð sem er annars vegar
eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám og hins vegar
tveggja ára sérnám fyrir sálfræðinga og geðlækna eru ætlaðir þeim sem hafa lokið prófi á grunnstigi háskóla.
Engin inntökuskilyrði
Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja - markviss leið og
Lykilþættir þjónustu - markviss leið eru hins vegar hagnýtar námsbrautir sem eru öllum opnar.
Fjarnám og lotur
Hægt er að stunda Leiðsögunám á háskólastigi og Nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala í fjarnámi. Námsbrautin Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja er kennd í stuttum lotum til að auðvelda áhugasömum á landsbyggðinni aðgang að náminu.
Umsóknarfrestur
Sótt er um á vef Endurmenntunar
www.endurmenntun.is en umsóknarfrestur er til
30. maí næstkomandi nema í Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja sem er 9. september og Lykilþættir þjónustu – markviss leið sem er 29. september.