Tilboð fyrir fólk án atvinnu - 50% afsláttur af ákveðnum námskeiðum

1.4.2009

Endurmenntun hefur ákveðið að bjóða fólki án atvinnu 50% afslátt af nokkrum vornámskeiðum. Námskeiðin sem um ræðir eru: Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson, Lög og réttur fyrir 50+, Íslenska flóran, Frístundalóðir, Franska riverian og Eldfjöll.

Nauðsynlegt er að taka fram í athugasemdarreit við skráningu að viðkomandi sé atvinnulaus og jafnframt þarf að sýna staðfestingu frá Vinnumálastofnun. Endurmenntun vonar að tilboðið komi sér vel. Staðfestinguna frá Vinnumálastofnun má senda rafrænt á netfangið gudnyarn@hi.is, eða skila staðfestingunni í afgreiðslu Endurmenntunar í síðasta lagi daginn sem námskeiðið byrjar.