Í samstarf við Listahátíð
24.1.2010
Listahátíð Reykjavíkur og Endurmenntun efna til samstarfs um námskeiðahald í tengslum við viðburði listahátíðarinnar í vor.
Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar og Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri skrifuðu í vikunni undir samstarfssamning þess efnis. Þetta er í fyrsta sinn sem Listahátíð og Endurmenntun vinna saman og í vor verður meðal annars námskeið um stöðu ljósmyndunar í umsjón Guðmundar Ingólfssonar ljósmyndara, þar sem valdar ljósmyndasýningar verða heimsóttar. Námskeiðin verða kynnt með dagskrá Listahátíðar og einnig hér á vef okkar.
Nánari upplýsingar um Listahátíð
hér
Hrefna Haraldsdóttir og Kristín Jónsdóttir við undirritun samningsins