PowerPoint snið
Gátlisti vegna framkvæmdar námskeiðs 



Námskeiðslýsing

 
Þegar námskeið er skipulagt og kynnt á vegum EHÍ er mikilvægt að hafa titil og lýsingu í góðu samræmi við efnistök. Titill námskeiðs þarf að endurspegla vel viðfangsefnið og fanga athyglina. Námskeiðslýsingin þarf að vera létt læsileg og auðskiljanleg öðrum en sérfræðingum. Þetta hefur þýðingu fyrir almenna markaðssetningu en þúsundir manna heimsækja heimasíðu okkar eða fá tilkynningar um námskeiðin með tölvupósti.
 
Leiðbeiningar um gerð námskeiðslýsingar

 

Námsgögn

 
Vönduð námsgögn eru mikilvægur þáttur í vel heppnuðu námskeiði og því þarf að huga að því hvernig best sé að koma efni sínu á framfæri, í fyrirlestrum, glærum og prentuðu efni. Taka þarf tillit til magns, útlits, skýrleika á texta, uppsetningar o.fl. Til að tryggja vandaðan frágang á námsgögnun þurfa þau að berast 5 virkum dögum áður en námskeið hefst, helst í tölvutæku formi í netfangið: namsgogn@endurmenntun.is. Allt námsefni og upplýsingar um niðurröðun þess skulu berast í þetta pósthólf sem og til viðkomandi verkefnastjóra.

Æskilegt er að öll gögn/glærur séu merkt með merki (logo) EHÍ og er öllum kennurum send Word- og PowerPoint-skjöl með merkinu og samræmdu útliti . Þegar kennsluefni er útbúið þarf að hafa í huga forkunnáttu þátttakenda þannig að tryggt sé að allir skilji kennsluefnið. Þá þarf að gæta þess að lesefni sé ekki of umfangsmikið en sjálfsagt er að láta ítarefni fylgja sem nýtist þátttakendum eftir að námskeiði lýkur. Gjarnan má vísa á hagnýtar vefslóðir.

Við útbúum kennsluefni á ýmsa vegu; oftast í gormahefti þar sem litlu verður við bætt nema skrifuðum athugasemdum; stundum í lausblaðamöppu sem hægt er að bæta í eftir því sem á námskeiðið líður. PowerPoint-glærur eru venjulega ljósritaðar þrjár glærur á síðu. Ef annars er óskað er sjálfsagt að skoða það. Við glærugerð skal athugað að hver glæra sé auðskilin og læsileg á slíku útprenti. Mælt er með leturgerðunum Ariel, Helvetica eða Verdana, frekar en Times New Roman, leturstærð 24. Ef fjölfaldaðar eru töflur, uppdrættir eða kort skal huga að því að myndir séu nægilega skýrar. 
 


PowerPoint snið
Leiðbeiningar um gerð námsgagna

Word snið - landscape

Word snið - portrait

 

Gátlisti

 
Að ýmsu er að hyggja við framkvæmd námskeiðs. Hér að neðan er gátlisti til upplýsingar um atriði eins og kaffitíma, ljósritun, viðveruskráningu og launamál.
 
Gátlisti vegna framkvæmdar námskeiðs