Hlutverk
Hlutverk Endurmenntunar Háskóla Íslands er að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi.

Stefna
Stefna Endurmenntunar Háskóla Íslands er að vera ávallt eftirsóknarverðasti valkostur fyrirtækja, stofnana og einstaklinga til símenntunar á Íslandi.

Með öflugri nýsköpun í námsframboði og þjónustu Endurmenntunar er unnið að því að auka hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi. Með það að markmiði er unnið náið með deildum Háskóla Íslands og öðrum samstarfsaðilum. 

Endurmenntun er skilvirkur farvegur fyrir miðlun þekkingar Háskóla Íslands til samfélagsins.


Umsvif

Endurmenntun Háskóla Íslands hefur starfað frá árinu 1983 og hefur umsvif hennar vaxið ár frá ári. Stjórn Endurmenntunar er skipuð fulltrúum Háskóla Íslands sem eru valdir af háskólaráði til þriggja ára.

Stjórn Endurmenntunar skipa:
Magnús Þór Jónsson, prófessor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði - stjórnarformaður
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor á Félagsvísindasviði - varaformaður
Hróbjartur Árnason, lektor á Menntavísindasviði
Oddný Sverrisdóttir, dósent á Hugvísindasviði
Vilborg Lofts, rekstrarstjóri á Heilbrigðisvísindasviði

Meginviðfangsefni Endurmenntunar er símenntun á háskólastigi. Flest námskeið á vegum stofnunarinnar eru 4-25 klukkustundir en allmörg ná yfir heilt misseri. Í vaxandi mæli er boðið upp á nám samhliða starfi sem lýkur með prófum. Þá er boðið upp á réttindanám á vegum ráðuneyta og sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir svo skipuleggja megi stöðuga framþróun og símenntun hjá starfsfólki.


Aðalstarfsemi

Markmið Endurmenntunar HÍ er að veita háskólamenntuðu fólki og almenningi fjölbreytt tækifæri til sí- og endurmenntunar. Starfsemi stofnunarinnar nær einnig til opinberra stofnana, félagasamtaka og einkafyrirtækja.

 

Menningar- og listanámskeið

Endurmenntun hefur langa og farsæla reynslu af því að halda námskeið á sviði menningar og lista á kvöldin. Á hverju misseri eru haldin 10-15 námskeið af ýmsum toga en ávallt er lögð mikil áhersla á fjölbreytt og vandað efni og góða kennara. Endurmenntun hefur í gegnum tíðina verið í góðu samstarfi við ýmsar menningarstofnanir um námskeiðahald, s.s. Vinafélag Íslensku Óperunnar og Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess að hafa aðgang að góðum hópi kennara sem eiga orðið fastan sess í huga þeirra sem sækja námskeiðin. Má þar m.a. nefna Árna Heimi Ingólfsson, Halldór Guðmundsson, Katrínu Jakobsdóttur, Magnús Jónsson og Ólaf Gíslason.


Starfstengd styttri námskeið

Endurmenntun leggur metnað sinn í að bjóða fagleg, starfstengd námskeið á sem flestum sviðum atvinnulífsins. Fjölbreytnin er mikil og margir starfshópar sækja stærstan hluta sinnar símenntunar til Endurmenntunar. Það er markmið Endurmenntunar að mæta þörfum fólks á öllum sviðum starfstengdrar símenntunar en því markmiði verður aðeins náð með góðu og gagnvirku samstarfi við atvinnulífið og stofnanir ríkisins. Meðal efnisflokka Endurmenntunar má nefna:


  • Rekstur og stjórnun, s.s. fjármálastjórnun, starfsmannastjórnun, gæðastjórnun og verkefnastjórnun
  • Lögfræði, hagfræði, fjármagnsmarkaður og reikningsskil, sölu- og markaðsmál
  • Heilbrigðis-, félags-, kennslu- og uppeldismál, tölfræði og rannsóknir
  • Hugbúnaður
  • Verkfræði, tæknifræði, arkitektúr, umhverfisfræði, vélar og iðnaður
  • Námskeið fyrir framhaldsskólakennara
  • Undirbúningsnám fyrir háskóla

Námsbrautir Endurmenntunar
Námsbrautir Endurmenntunar eiga sér langa hefð í námsframboðinu. Á tímabili sem spannar aldarfjórðung hafa á þriðja þúsund Íslendinga útskrifast úr námsbrautum á lykilsviðum viðskiptafræðinnar og styrkt stöðu sína verulega í atvinnulífinu.

Námsbrautirnar er kjörnar fyrir þá sem vilja auka menntun sína án þess að láta tímabundið af störfum þar sem þær eru skipulagðar fyrir utan hefðbundinn vinnutíma. Þetta er reyndar einn helsti kostur námsins. Verkefni eru raunhæf og hagnýt enda iðulega sett í samhengi við þær áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir í eigin starfi. Við þetta bætist að nemendur hafa mjög ólíkan bakgrunn og reynsluheim sem eykur til muna gildi námsins.

Sérstaða námsbrauta Endurmenntunar felst þó ekki síður í hinu verðmæta tengslaneti sem skapast á meðan náminu stendur. Nemendahóparnir eru litlir sem stuðlar að sterku hópefli sem og persónulegri nánd og þjónustu kennara. Námið fer alla jafnan fram í lotum og yfirleitt lýkur hverri námsgrein með prófi eða verkefni áður en hin næsta hefst.

Stöðug þróun á sér stað í námsbrautunum , bæði hvað varðar inntak og áherslur í náminu sjálfu, en ekki síður í þjónustustigi sem hefur hækkað jafnt og þétt í takt við auknar kröfur nemenda. Til að mynda eru sumar námsbrautir í boði í fjarnámi og aðstaða til verkefnavinnu hefur verið stórbætt.


Hægt er að kynna sér framboð námsbrauta hér


Einnig á EHÍ samstarf við deildir háskólans og aðra skóla um námsbrautir , m.a., MPM (meistaranám í verkefnastjórnun).


Stök námskeið á meistarastigi

Samstarf Endurmenntunar og Háskóla Íslands gegnir veigamiklu hlutverki í þeirri þjónustu Endurmenntunar að geta boðið upp á stök námskeið á meistarastigi. Aðsóknin í þessi námskeið hefur aukist mikið enda geta nemendur með þessu móti sótt sér framhaldsmenntun á háskólastigi með vinnu. Framboð námskeiða hefur einnig aukist samhliða aðsókninni enda sjá flest svið háskólans sér hag í að kynna framboð sitt með þessum hætti.


Réttindanám á vegum ráðuneyta

  • Námskeið og próf í eignaskiptayfirlýsingum
  • Námskeið og próf til réttinda í leigumiðlun
  • Nám til löggildingar fasteigna-, fyrirtækja- og skipasala



EHÍ kort og símanúmer ....