Vilt þú kenna hjá Endurmenntun?


Endurmenntun HÍ býður ár hvert mikinn fjölda styttri námskeiða fyrir almenning og fagfólk. Í gegnum tíðina hafa hundruðir sérfræðinga komið að kennslu hjá stofnuninni, sem er í takt við þá stefnu hennar að endurskoða og þróa stöðugt námsframboð sitt. Kennsla hjá Endurmenntun er eftirsótt enda ófáir sérfræðingar sem flagga kennslureynslu sinni hjá stofnuninni á ferilskrám sínum.


Starfsfólk Endurmenntunar er stöðugt á höttunum eftir nýjum kennurum og hugmyndum að spennandi námskeiðum. Við hvetjum alla þá sem telja sig hafa góðar hugmyndir að sækja um kennslu hjá okkur!


Umsókn um kennslu á námskeiðum