Lífeðlisfræði fyrir framhaldsskóla
Í samstarfi við Samlíf - samtök líffræðikennara
Námskeiðið er einkum ætlað kennurum sem kenna lífeðlisfræði.
Skráningarfrestur er til 1. júní 2011.
Markmiðið er að dýpka kunnáttu kennara á ákveðnum þáttum innan lífeðlisfræðinnar með fyrirlestrum og verklegum æfingum og auðvelda þeim þannig að þróa verkefni og verklegar æfingar í kennslu sinni. Fjallað verður um starfsemi nýrna, hjartans og öndunarkerfisins. Námskeiðið samanstendur af fræðilegum fyrirlestrum um efnið, verklegum æfingum og úrvinnslu þeirra. Í lokin verður samantekt á efninu í samvinnu nemenda og kennara og í sameiningu farið yfir hvernig hugsanlega má hagnýta efnið í kennslu.
Sjá skipulag námskeiðsins undir “Nánari lýsing”.
Nánari lýsing
Skráningu í þetta námskeið er lokið
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / umsjón:
Umsjónarmenn: Marta Guðjónsdóttir, netfang: marta@reykjalundur.is og Jóhann Guðjónsson, netfang: johann@flensborg.is
Helstu kennarar verða Marta Guðjónsdóttir og Sighvatur Sævar Árnason en bæði eru kennarar við HÍ og sérfræðingar hjá Lífeðlisfræðistofnun HÍ. Nokkrir aðrir koma þar líka að kennslunni.
Hvenær: 14. - 16. júní
Verð: Nánar auglýst síðar.
|