Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara sér um að úthluta styrkjum til endurmenntunar framhaldsskólakennara fyrir hönd Menntamálaráðuneytisins. Endurmenntun Háskóla Íslands er framkvæmdaraðili nefndarinnar og annast skipulag námskeiða í samvinnu við umsjónarmenn þeirra og fagfélög.
Hér er að finna upplýsingar um sumarnámskeið fyrir framhaldsskólakennara, úthlutunarreglur vegna styrkja til einstaklinga, fagfélaga og skóla. Einnig ýmsar hagnýtar upplýsingar m.a. fyrir umsjónarmenn námskeiða.
Nám og námskeið styrkt af nefndinni:
Sumarnámskeið
Nám samhliða starfi/Vettvangsnám
Nám til eininga á háskólastigi
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara var fyrst skipuð af menntamálaráðuneyti árið 1987.
Nefndina skipa nú:
-
Fulltrúi menntamálaráðuneytis, sem jafnframt er formaður nefndarinnar: Björg Pétursdóttir, netfang: bjorg.petursdottir@mrn.stjr.is.
-
Fulltrúar Félags framhaldsskólakennara: Ósa Knútsdóttir kennari við MS, netfang:osak@msund.is og Anna María Gunnarsdóttir kennari við FB, netfang: amg@fb.is.
-
Fulltrúi Háskóla Íslands: Helgi Skúli Kjartansson, prófessor við HÍ, netfang: helgisk@hi.is
-
Fulltrúi Félags íslenskra framhaldsskóla: Margrét Friðriksdóttir, skólameistari MK, netfang: mf@mk.is.
Starfsmenn nefndarinnar:
-
Hulda Mjöll Hauksdóttir, s. 525 4924, netfang: hulda@hi.is, sinnir málum nefndarinnar ásamt öðrum starfsmönnum Endurmenntunar Háskóla Íslands
-
Faglegur starfsmaður nefndarinnar er Kristín Runólfsdóttir, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands, netfang: kristrun@fsu.is
Árskýrsla nefndar 2010
Árskýrsla nefndar 2009