Einingabær námskeið á grunnstigi
Mögulegt er að sækja fjölmörg sjálfstæð námskeið úr námsbrautum Endurmenntunar. Námskeiðin er hægt að fá metin til eininga í grunnnám á háskólastigi og flest þeirra eru jafnframt kennd í fjarnámi. Þau eru hluti af námsbrautum Endurmenntunar en þær eru m.a. Rekstrar- og viðskiptanám, Mannauðsstjórnun, Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun og Leiðsögunám á háskólastigi.
Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem vilja auka menntun sína samhliða starfi og safna jafnframt einingum í grunnnám á háskólastigi. Verkefni eru raunhæf og hagnýt enda iðulega sett í samhengi við þær áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir í eigin starfi. Við þetta bætist að nemendur hafa mjög ólíkan bakgrunn og reynsluheim sem eykur til muna gildi námskeiðanna.
Þátttakendur geta í flestum tilfellum valið milli þess að sækja tíma með öðrum nemendum eða stunda námið í fjarnámi. Fjarnemar sækja kennslustundir á vefsvæði námskeiðsins en sá valmöguleiki stendur einnig þeim sem eru í staðnámi til boða ef þeir missa af tíma.
Forkröfur fyrir námskeiðin er stúdentspróf eða sambærileg menntun. Frekari upplýsingar veitir:
Kristín Birna Jónasdóttir, verkefnastjóri, s. 525-5296, netfang: kristind@hi.is