Almenn tölfræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema (LÆK101F)
Í samstarfi við læknadeild Háskóla Íslands
Ætlað þeim sem vilja auka þekkingu sína og færni í aðferðum tölfræði. Námskeiðið er á meistarastigi og má meta til 6 ects. eininga sem hluta af námi til MS-prófs. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.
Markmið námskeiðsins er að leggja grunn að almennri þekkingu og færni meistara- og doktorsnema í aðferðum vísinda. Farið er í lýsandi tölfræði, áhrifstölur, áreiðanleika og réttmæti, ályktunartölfræði, algengustu tölfræðipróf bæði stikabundin og óstikabundin, fjölþátta aðhvarfgreiningar, lifunargreiningar og safngreiningar. Þá er nemendum kynnt tölfræðiúrvinnsla í tölvum í verklegum tímum.
Sjá kennsluskrá hér:
Kennsluskrá HÍ
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / Umsjón:
Umsjón og kennsla: Gunnsteinn Haraldsson, kennslustjóri rannsóknartengds náms, Helga M. Ögmundsdóttir, prófessor og Þórarinn Sveinsson, dósent.
Tímabil: 3.9.2010 - 3.12.2010
Hvenær: Fös. 3. sept. - 3. des. kl. 8:10-10:00. Sjá nánar í meðfylgjandi stundaskrá.
Verð: 45.700 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Kennarar:
|