Skipulag og stjórnun (VIÐ107F)
Í samstarfi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Námskeið í viðskiptafræði eru á framhaldsstigi og jafngilda námskeiðum á meistarastigi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs við deildina sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu kenningar um skipulagsheildir og stjórnun þeirra. Áherslan er á skipulag fyrirtækja frá ólíkum hliðum. Kenningarnar verða ræddar, styrkleikar þeirra og veikleikar dregnir fram í umræðum og verkefnum. Undir lok námskeiðsins er viðfangsefnið hvernig skipulagið er lykillinn að því að tryggja framkvæmd stefnu og árangur fyrirtækisins. Fyrir hvern tíma verða settar fram spurningar sem ræddar verða í tímanum en stór hluti kennslunnar verður á umræðu formi.
Sjá kennsluskrá hér:
Kennsluskrá HÍ
Sjá stundaskrá hér:
Stundaskrá HÍ
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / Umsjón:
Umsjónarkennari: Runólfur S Steinþórsson, prófessor. Kennari: Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor.
Tímabil: 2.9.2010 -
Hvenær: Kennt er á dagtíma. Stundatafla verður birt hjá viðkomandi deild í ágúst. Sjá nánar á heimasíðu viðskiptafræðideildar undir stundatöflur.
Verð: 67.000 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Kennarar:
|