Stjórnun og forysta (VIÐ112F)
Í samstarfi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Námskeið í viðskiptafræði eru á framhaldsstigi og jafngilda námskeiðum á meistarastigi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs við deildina sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.
Markmið námskeiðsins er að nemendur dýpki þekkingu og skilning á helstu kenningum um stjórnun og forystu og kynni sér skrif þekktra fræðimanna.
Í byrjun er fjallað um lykilhugtökin stjórnun og forystu. Leitast verður við að svara spurningum eins og: Hvað er forysta? Er munur á stjórnun og forystu? Nemendur munu kynna sér og ræða kenningar og framlag nokkurra þekktra kennismiða til stjórnunarfræðanna. Farið verður yfir hinar mismunandi nálganir eða kenningar sem þróast hafa um forystu.
Í framhaldinu verður áherslan á kenningar um leiðtogann og um fylgjendur. Athyglinni verður beint að þáttum eins og persónueinkennum, völdum og áhrifum og þeim áskorunum sem stjórnendur og leiðtogar standa frammi fyrir og hvernig bregðast má við. Þá verður skoðað hvernig greina megi fylgjendur og virkja fólk til þátttöku í umbótum og meiriháttar breytingum.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir s.s. fyrirlestrar, umræður og verkefnavinna. Þá er markmiðið að nemendur fái tækifæri til að hlýða á reynslusögur gesta úr atvinnulífinu er tengjast stjórnun og forystu í fyrirtækjum og stofnunum.
Sjá kennsluskrá hér:
Kennsluskrá HÍ
Sjá stundaskrá hér:
Stundaskrá HÍ
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / Umsjón:
Inga Jóna Jónsdóttir, lektor
Tímabil: 1.9.2010 -
Hvenær: Kennt er á dagtíma. Stundatafla verður birt hjá viðkomandi deild í ágúst. Sjá nánar á heimasíðu viðskiptafræðideildar undir stundatöflur.
Verð: 67.000 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Kennarar:
|