Alþjóðamarkaðssetning (VIÐ116F)
Í samstarfi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Námskeið í viðskiptafræði eru á framhaldsstigi og jafngilda námskeiðum á meistarastigi við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs við deildina sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning til að takast á við verkefni, sem fyrirtæki í alþjóðlegum viðskiptum þurfa að sinna. Farið er í kenningar og líkön sem nota má til að skýra hegðun fyrirtækja í milliríkjaviðskiptum og til að spá fyrir um árangur. Notuð verða greiningardæmi (case) og greinar úr viðurkenndum tímaritum. Auk þess munu nemendur vinna raunhæft verkefni sem unnið er í samstarfi við Úflutningsráð Íslands. Með vinnslu verkefnisins fá nemendur þjálfun í að framkvæma markaðsrannsókn og velja markaði og inngönguaðferð á erlenda markaði. Kynntir verða helstu gagnagrunnar sem hægt er að nota varðandi markaðsrannsóknir í alþjóðamarkaðssetningu og farið yfir hvernig hugbúnaðarlausnir geta nýtst til að gera áætlanagerðina fljótvitkari, faglegri og markvissari. Á námskeiðinu er gert ráð fyrir mikilli virkni nemenda í umræðum. Helstu efnisþættir námskeiðsins eru; val á mörkuðum, inngönguaðferðir, ákvörðun um val á markaðsaðgerðum og stjórnun og eftirlit.
Kennsluskrá HÍ
Sjá stundarskrá hér:
Stundaskrá HÍ
a
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / Umsjón:
Umsjónarmaður: Ingjaldur Hannibalsson, prófessor. Kennari: Gunnar Óskarsson Stundakennari.
Tímabil: 1.9.2010 -
Hvenær: Kennt er á dagtíma. Stundatafla verður birt hjá viðkomandi deild í ágúst. Sjá nánar á heimasíðu viðskiptafræðideildar undir stundatöflur.
Verð: 67.000 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Kennarar:
|