|
|
|
Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi (Haust 2010)
Hvenær:
12.08.2010 - 01.06.2011
Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námsbrautin hefst í ágúst 2010 og lýkur í lok júní 2011 Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi.
Inntökuskilyrði í námið eru: - Stúdentspróf eða sambærileg menntun. - Gott vald á íslensku. - Fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
Hugverkaréttur - með sérstakri áherslu á einkaleyfarétt (Haust 2010)
Hvenær:
15.08.2010 - 30.03.2011
Nám í Hugverkarétti er samstarfsverkefni Félags einkaleyfasérfræðinga, Einkaleyfastofu og Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Námið er sérlega hentugt þeim sem eru að taka sín fyrstu skref á sviði hugverkaréttinda og hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi, sérstaklega innan einkaleyfaréttar. Þá er námið hugsað sem grundvöllur frekari undirbúnings fyrir próf til starfsréttinda sem evrópskur forsvarsmaður einkaleyfa (European Patent Attorney), en slík réttindi opna ýmsa atvinnumöguleika hér á landi, sem og innan Evrópu. Einnig hentar námið vel stjórnendum og þeim sem bera ábyrgð á hugverkaréttindum innan fyrirtækja og stofnana hér á landi. Nemendur í framhaldsnámi, sérstaklega innan verkfræði, raunvísinda, lyf- og læknisfræði hafa einnig gagn af náminu.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
|
Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun (Haust 2010)
Hvenær:
30.08.2010 - 01.05.2011
Viðskiptaumhverfi nútímans kallar eftir fólki sem hefur færni til að taka þátt í og stjórna margvíslegum verkefnum. Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám, ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS - Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa - Kynverund, siðfræði og samfélag - Kynlíf og samtími
Hvenær:
01.09.2010 - 31.12.2011
Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi var Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.
Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.
Umsóknarfrestur til 20. júní 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
Matsfræði Grunnnám 24 ein -Markaðsmat 50 ein- Kostnaðarmat 50 ein (Haust 2010)
Hvenær:
01.09.2010 - 15.12.2010
Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Námsbrautin er ætluð verk- og tæknifræðingum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, byggingafræðingum, iðnfræðingum, löggiltum fasteignasölum og arkitektum. Auk þess er námið ætlað þeim sem hafa umfangsmikla reynslu af mannvirkjagerð og fasteignamarkaði og vilja afla sér frekari menntunar á þessu sviði. Stúdentsprófs eða sambærilegs náms er krafist sem lágmarksinntökuskilyrða. Á haustmisseri 2010 verða kennd námskeiðin Skoðun I og Skoðun II. Nánari tímsetning verður tilkynnt síðar.
Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
|
Gæðastjórnun (Haust 2010)
Hvenær:
02.09.2010 - 01.05.2011
Námið er metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði gæðastjórnunar. Nemendur öðlast víðtæka þjálfun á öllum helstu sviðum gæðastjórnunar sem gerir þeim kleift að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið hentar vel þeim sem bera ábyrgð á gæðamálum fyrirtækja og stofnana eða hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi. Enn er tekið við umsóknum.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
|
Framkvæmdaferli mannvirkjagerðar - fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör (Vor 2011)
Hvenær:
08.02.2011 - 13.12.2011
Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við ráðgjöf og bera ábyrgð á ráðgjafasamningum, ráðningu hönnuða, útboðum, gerð útboðsgagna, samningum við verktaka, fjármögnum verkefna og áhættugreiningu innan fyrirtækja og stofnanna. Námið hentar tæknifræðingum, verkfræðingum, arkitektum, landslagshönnuðum og lögfræðingum ásamt öðrum ráðgjöfum í skyldum fögum sem og verktökum, verkkaupum sem hyggjast tileinka sér þetta sérsvið.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|
|
|
Fjölskyldumeðferð - Nám á meistarastigi (Haust 2011)
Hvenær:
01.09.2011 - 30.05.2013
Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd og Diakonhjemmets Högskola í Noregi.
Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur: Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi
Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.
Nánari upplýsingar hér
|
 |
|