Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun (Haust 2010)
Viðskiptaumhverfi nútímans kallar eftir fólki sem hefur færni til að taka þátt í og stjórna margvíslegum verkefnum. Verkefnastjórnun - leiðtogaþjálfun er fjölbreytt nám, ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og í daglegu lífi. Enn er tekið við umsóknum.
Námið byggir á að efla fjóra megin færniþætti nemenda; stefnumótunarfærni, skipulagsfærni, leiðtogafærni og samskiptafærni. Unnið er með alla þessa færniþætti jafnt og þétt yfir allan námstímann og áherslan er á að kenna nemendum hagnýtar aðferðir og þjálfa þá í notkun þessara aðferða. Námið snýst öðru fremur um að kenna nemendum aðferðafræði verkefnastjórnunar og margvísleg hjálpartæki sem henni tengjast. Stór hluti þessarar vinnu er að fjalla um verkefnastjórnun út frá mannlegri hegðun, tilfinningu og agaðri hugsun og leitast við að þroska leiðtogahæfileika þátttakenda. Megnið af vinnunni fer fram innan veggja kennslustofunnar í fjölbreytilegri og skemmtilegri vinnu og leik.
Námið er fyrir áhugasamt og dugmikið fólk sem hefur vilja til verka og ánægju af að efla færni sína í starfi og leik og um leið kynnast nýjum hugmyndum og nýju fólki. Lögð er áhersla á að kenna verkefnastjórnun og þroska leiðtogahæfni nemenda með því að nota raunhæf verkefni. Námið er ígildi 24 (ECTS) háskólaeininga. Fyrra misseri hefst í september og lýkur í nóvember og seinna misserið hefst í janúar og lýkur í apríllok. Náminu lýkur með því að nemendur undirgangast alþjóðlega D vottun í verkefnastjórnun og fá alþjóðlegan titil; "Certified Project Management Associate."
Umsagnir frá fyrrum nemendum:
"Eftir 25 ára starf á ýmsum stigum stjórnsýslunnar, innanlands og utan, var ég reynslunni ríkari en fannst mig vanta dýpri skilning á verkefnaumsýslu og stjórnun. Því greip ég fegins hendi tækifæri til hefja diplómanám í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Námið reyndist fyllilega standa undir væntingum og jók ekki bara þekkingu mína á verkefnastjórnun heldur veitti mér nýja sýn á önnur stjórnunartengd atriði. Ekki síst var hópvinnan dýrmæt því það er mjög lærdómsríkt að vinna að verkefnum utan eigin þægindaramma. Það sem kom mér mest á óvart voru krefjandi, en um leið mjög gefandi, áfangar í leiðtoga- og samskiptafærni. Námið hefur nú þegar nýst mér vel bæði í leik og starfi." Ágústa Gísladóttir, útskrifuð úr Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun
"Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun er í senn krefjandi og skemmtilegt ferðalag.Í náminu er mikil áhersla er lögð á verklega þjálfun, bæði í mannlegum samskiptum og hagnýtum aðferðum við stjórnun verkefna. Þess vegna er mismunandi þekking og reynsla nemenda og kennara ómetanlegur auður í öllu námsferlinu. Ég tel námið hafa eflt færni mína verulega og veit að það mun nýtast mér í öllu sem ég tek mér fyrir hendur, annað er í raun óhjákvæmilegt." Marsibil Sæmundardóttir, útskrifuð úr Verkefnastjórnun
Nánari lýsing
|
|

Kennsla / Umsjón:
Verkefnisstjóri er Kristín Birna Jónasdóttir, netfang: kristind@hi.is, sími: 525-5296
Tímabil: 30.8.2010 - 1.5.2011
Hvenær: Kennt er hvern mánudag og annan hvern þriðjudag frá klukkan 16:00-20:00.
Verð: 450.000 kr.
Kennarar:
|