Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS
- Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa
- Kynverund, siðfræði og samfélag
- Kynlíf og samtími

 

Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hvatamaður þess og ráðgjafi í upphafi var Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynfræðingur. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar.
Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.


Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.

Umsóknarfrestur til 20. júní 2010.

 

Markmið náms í kynfræði eru m.a. að nemendur:

  • Öðlist fræðilega þekkingu á hugtökum, hugmyndafræði, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum kynfræða.
  • Kynnist nýjustu rannsóknum um kynheilbrigðismál.
  • Geti nýtt fræðilega þekkingu sína og skilning á kynfræði ásamt tjáskiptafærni í faglegri nálgun í starfi.
  • Búi yfir þekkingu og færni til að fræða skjólstæðinga og aðra um kynlíf.
  • Hafi víðtæka vitneskju um vandamál og viðfangsefni, fræðileg sem hagnýt, byggð á nýjustu rannsóknum í kynfræði.
  • Geri sér grein fyrir eigin gildismati og viðhorfum til kynferðismála.
  • Geti áttað sig á nýjungum og þróun á sviði kynfræða sem byggist á vísindalegum grunni.


Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og umræðum. Gert er ráð fyrir lotukennslu og möguleika á e-mission upptökum. Þannig er fagfólki í starfi innan sem utan Reykjavíkur auðveldað að geta nýtt sér námið. Að kennslunni koma bæði innlendir og erlendir fræðimenn á sviði kynfræðinnar.

Nemendur innan Háskóla Íslands:
Skáning fer fram í gegnum Ugluna.
Fagfólk sem ekki er skráð til náms í Háskóla Íslands:
Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda utan HÍ. Nemendur sem sækja um námskeiðið hjá EHÍ eru vinsamlega beðnir um að láta viðeigandi prófskírteini fylgja með umsókn.

Smella þarf á námskeiðsheiti hér að neðan til að fá frekari upplýsingar og skrá sig:

Kynverund, siðfræði og samfélag - Haustmisseri 2010

Samtími og kynlíf - Vormisseri 2011

Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa - Haustmisseri 2011



Skráning

 

   Skráning

Kennsla / Umsjón:

Umsjón með námskeiðunum hafa:
Sólveig A. Bóasdóttir, dósent í guðfræði- og trúarbragðafræðideild hefur umsjón með námskeiðinu Kynverund og siðfræði. Kennt á haustmisseri 2010.
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjafardeild hefur umsjón með námskeiðinu Kynlíf og samtími. Kennt á vormisseri 2011.
Sóley S. Bender, prófessor í hjúkrunarfræðideild hefur umsjón með námskeiðinu Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa. Kennt á haustmisseri 2011.

 

 

Tímabil: 1.9.2010 - 31.12.2011

 

Hvenær: Haustmisseri 2010 - haustmisseri 2011

 

Verð: Nánar auglýst síðar.



Kennarar:

 


[Til baka]