Gæðastjórnun (Haust 2010)
Skráningu er lokið.
Námið er metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði gæðastjórnunar. Nemendur öðlast víðtæka þjálfun á öllum helstu sviðum gæðastjórnunar sem gerir þeim kleift að takast á við ný og krefjandi verkefni. Námið hentar vel þeim sem bera ábyrgð á gæðamálum fyrirtækja og stofnana eða hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi. Enn er tekið við umsóknum.
Í samstarfi við iðnaðarverkfræði- vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands býður Endurmenntun HÍ upp á nám í gæðastjórnun. Námið er 24 (ECTS) einingar á háskólastigi og nær yfir tvö misseri.
Markmið námsins: - Að bjóða upp á metnaðarfullt, krefjandi og hagnýtt nám í gæðastjórnun.
- Að nemendur öðlist yfirsýn yfir fræðilegan bakgrunn gæðastjórnunar og helstu gæðastjórnunarstaðla samtímans.
- Að nemendur verði færir um að hanna og innleiða gæðastjórnunarkerfi í fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum.
- Að nemendur verði færir um að samhæfa gæðastarf í fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum, stjórna umbótastarfi og leiða stefnumótun á sviðum gæðastjórnunar.
- Að opna nemendum leið til að nýta námseiningar í sérhæfðu gæðastjórnunarnámi í frekara háskólanámi.
Nánari upplýsingar um námið veitir Kristín Birna Jónasdóttir, verkefnastjóri EHÍ, í síma 525-5296, netfang: kristind@hi.is
Umsögn fyrrum nemanda:
"Eitt það besta við nám í Endurmenntun er að einungis er tekið fyrir eitt fag í einu og það klárað áður en næsta fag hefst. Ekki skemmir að andinn hjá Endurmenntun er frábær hvort sem er hjá nemendum eða starfsmönnum sem maður þarf að leita til. Get hiklaust mælt með þessu námi við alla." Laufey Sigurðardóttir, útskrifuð úr Gæðastjórnun
Nánari lýsing
|
|

Kennsla / Umsjón:
Verkefnisstjóri er Kristín Birna Jónasdóttir, netfang: kristind@hi.is, sími: 525-5296
Tímabil: 2.9.2010 - 1.5.2011
Hvenær: Námskeiðin eru skipulögð í mislöngum lotum eftir eðli þeirra og efni.
Verð: 393.000 kr.
Kennarar:
|