Hugverkaréttur - með sérstakri áherslu á einkaleyfarétt (Haust 2010)

 

Nám í Hugverkarétti er samstarfsverkefni Félags einkaleyfasérfræðinga, Einkaleyfastofu og Endurmenntunar Háskóla Íslands.

Námið er sérlega hentugt þeim sem eru að taka sín fyrstu skref á sviði hugverkaréttinda og hyggjast hasla sér völl á þeim vettvangi, sérstaklega innan einkaleyfaréttar. Þá er námið hugsað sem grundvöllur frekari undirbúnings fyrir próf til starfsréttinda sem evrópskur forsvarsmaður einkaleyfa (European Patent Attorney), en slík réttindi opna ýmsa atvinnumöguleika hér á landi, sem og innan Evrópu. Einnig hentar námið vel stjórnendum og þeim sem bera ábyrgð á hugverkaréttindum innan fyrirtækja og stofnana hér á landi. Nemendur í framhaldsnámi, sérstaklega innan verkfræði, raunvísinda, lyf- og læknisfræði hafa einnig gagn af náminu.

 

Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.

Námið er metnaðarfull og hagnýtt fyrir þá sem vilja öðlast akademíska jafnt sem hagnýta þekkingu og færni á sviði hugverkaréttar. Lögð er sérstök áhersla á Einkaleyfarétt.

Námið samanstendur af þremur námskeiðum: Inngangur að lögfræði, Hugverkaréttur og Einkaleyfalöggjöf.

Markmið
Að veita grunnþekkingu á lagalegri aðferðafræði og almennum hugverkarétti, þannig að nemendur öðlist skilning á eðli og mikilvægi hugverkaverndar fyrir atvinnulíf. Lögð verður sérstök áhersla á einkaleyfarétt og samevrópska einkaleyfalöggjöf. Markmið námsins er einnig að auðvelda undirbúning þátttakenda undir hæfnispróf sem forsvarsmenn evrópskra einkaleyfa.

Gert er ráð fyrir að unnt verði að taka einstök námskeið innan námsins. Verð á stöku námskeiði er 97.000 kr.

 

Nánari lýsing



Skráning

 

   Skráning

Kennsla / Umsjón:

Kennarar eru Hafsteinn Þór Hauksson, lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá umboðsmanni alþingis og aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands, Borghildur Erlingsdóttir, LL.M., yfirlögfræðingur hjá Einkaleyfastofunni og stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og Þorlákur Jónsson, formaður Félags einkaleyfasérfræðinga. Ýmsir sérfræðingar á sviði einkaleyfaréttar munu einnig kenna, bæði innlendir og erlendir.

Nánari upplýsingar um námið veitir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námstjóri EHÍ í síma 525-4909 og Þorlákur Jónsson, formaður Félags einkaleyfasérfræðinga í síma 570-2997.

 

 

Tímabil: 21.10.2010 - 30.3.2011

 

Hvenær: Kennt er eitt námskeið í einu og lýkur hverju námskeiði með prófi áður en næsta námskeið hefst. Kennsla fer fram tvisvar til þrisvar í viku, tvo virka daga frá kl. 16:10 - 19:55 og/eða á laugardögum kl. 9:00 - 15:00. Námið hefst í lok ágúst 2010 og lýkur í lok mars 2011.

 

Verð: 250.000 kr.



Kennarar:

 


[Til baka]