Norðurljós

Í samstarfi við Félag leiðsögumanna

Athugið! Þetta námskeið er aðeins ætlað leiðsögumönnum í Félagi leiðsögumanna.

Umsagnir ánægðra leiðsögumanna sem sátu námskeiðið haustið 2009:

  • ”Miðað við síaukið vægi norðurljósaferða í ferðaþjónustunni myndi ég telja að enn fleiri leiðsögumenn eigi erindi á námskeiðið. ”
  • ”Fyrsta flokks kennsla á mannamáli.”

  • Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.

    Á námskeiðinu er fjallað um norðurljós og tilurð þeirra. Samspil sólar og sólvindsins við segulsvið jarðar verður útskýrt og tíðni norðurljósa þannig tengd við virkni sólar.
    Farið verður í myndun norðurljósanna í háloftunum og sagt frá mælingum og rannsóknum sem stundaðar eru á ljósunum hér á landi. Loks verður rætt um norðurljósin sem áhugaverð fyrirbæri fyrir ferðamenn og kynnt hvernig meta má að norðurljós geti verið sýnileg tiltekið kvöld (norðurljósaspár). Ef tími vinnst til verður einnig farið í undirstöðuatriði ljósmyndunar á norðurljósunum.

    Skráning

Kennsla / umsjón:

Gunnlaugur Björnsson, stjarneðlisfræðingur

Hvenær:

Mán. 8. nóv. og mið. 10. nóv. kl. 20:15 - 22:15

Námskeiðið fer fram hjá EHÍ við Dunhaga 7 í Reykjavík

Verð: 6.000 kr.

[Til baka]

Eldfjöll

Í samstarfi við Félag leiðsögumanna.

Athugið! Þetta námskeið er aðeins ætlað leiðsögumönnum í Félagi leiðsögumanna.

Á námskeiðinu verður fjallað um eldfjöll á Íslandi, virkni þeirra og tengsl við flekaskil, flekahreyfingar og heitan reit. Þá verða skýrðar helstu aðferðir sem beitt er til að segja til um ástand eldstöðvanna, kvikusöfnun undir þeim og líkur þess að gos sé í aðsigi. Rakið verður hvernig fylgst var með síðustu eldsumbrotum við Kröflu, Heklu, Eyjafjallajökul og undir Vatnajökli. Og hvað er í gangi í jarðskorpunni við Öskju og Upptyppinga?

Skráningarfrestur er til 6. október.

Skrá mig