Heilbrigðis- og félagssvið



Félagsfælni og líkamsskynjunarröskun

Hvenær: 27.01.2012 - 28.1.2012

Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).


Vinnustofan er hluti af námi í hugrænni atferlismeðferð.

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Sjálfsvígsfræði - með sérstöku tilliti til sjálfsvíga ungs fólks

Hvenær: 03.02.2012 - 4.2.2012

Einn af mikilvægustu þáttum fyrirbyggjandi aðgerða gegn sjálfsvígum er endurmenntun fagfólks. Hér er boðið upp á námskeið sem sérstaklega fjallar um sjálfsvígsatferli ungs fólks. Sjálfsvíg hafa lengi verið alvarlegt samfélagslegt vandamál en á Íslandi svipta sig árlega 30 - 50 manns lífi. Sjálfsvíg ungs fólks hafa aukist síðustu áratugina.

Hámarksfjöldi þátttakenda námskeiðsins er 20.

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Þjónusta við blinda og sjónskerta einstaklinga

Hvenær: 14.02.2012 - 14.2.2012

Í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga


Markmið námskeiðsins er að kynna helstu augnsjúkdóma og fjalla um hjálpartæki, athafnir daglegs lífs og leiðsögutækni.
Námskeiðið er ætlað fagfólki innan heilbrigðisstofnana, s.s. hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum.
Skráningarfrestur er til 7. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Anxiety disorders, theory and practice

Hvenær: 17.02.2012 - 18.2.2012

Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).


Vinnustofan er hluti af námi í hugrænni atferlismeðferð. Kennt er á ensku.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Heilinn
Uppbygging, starfsemi, sjúkdómar og greining

Hvenær: 05.03.2012 - 6.3.2012

Námskeiðið er í samvinnu við Félag lífeindafræðinga. Námskeiðið er ætlað fagfólki á heilbrigðissviði.

Markmiðið er að veita þátttakendum innsýn í starfssemi og uppbyggingu heilans og miðtaugakerfisins. Farið verður í helstu sjúkdóma í heila og sem eru tengdir miðtaugakerfinu. Rannsóknir og meðferðamöguleikar verða kynntir.
Skráningarfrestur er til 29. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Vakandi athygli (gjörhygli) og innsæ íhugun

Hvenær: 13.03.2012 - 22.3.2012

Námskeiðið er öllum opið en einkum ætlað sálfræðingum og öðrum fagaðilum sem fást við meðferð og ráðgjöf.
Á síðustu árum hafa sjónir sálfræðinga beinst í æ ríkari mæli að því hvað meðferðarsambandið á stóran þátt í árangri meðferðar. Sálfræðiaðferðir sem byggja á meira en tveggja alda gamalli visku og innsæi í mannlegt sálarlíf hafa náð athygli meðferðaraðila og vísindamanna sem leitast við að lina andlega þjáningu.

Skráningarfrestur er til 6. mars 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Þrautseigja - Að vaxa og blómstra við mótlæti

Hvenær: 14.03.2012 - 21.3.2012

Á tímum niðurskurðar upplifa margir óvæntar og óþægilegar breytingar, s.s. atvinnumissi eða aukið vinnuálag á færri hendur. Oft fylgir krafa um aukin gæði á skemmri tíma, með lágmarks tilkostnaði þar sem atvinnuöryggi virðist ógnað úr ýmsum áttum. Þá reynir mjög mikið á leikni okkar til að mæta álagi, breytingum eða andstreymi.

Skráningarfrestur til 7. mars 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Hvenær: 22.03.2012 - 23.3.2012

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.


Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, kennurum, þroskaþjálfum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Mjög áhugavert námskeið. Agnes er alveg einstök og frábær kennari.”
  • ”Brillíant námskeið - Gríðarlega hagnýtt - Skemmtilegur og faglegur kennari.”
  • ”Mjög gagnlegt námskeið - fyrir alla sem þurfa að hafa samskipti við fólk!”
  • ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Chronic pain, chronic illness

Hvenær: 23.03.2012 - 24.3.2012

Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).


Vinnustofan er hluti af námi í hugrænni atferlismeðferð. Kennt er á ensku.
The aim of the two-day workshop is to increase understanding of chronic pain, and to discuss and practice skills in assessment, engagement and interventions using evidence-based cognitive-behavioural interventions. This will include discussing definitions, features, development of persistent pain; theories of chronic pain and how they relate to psychological distress and to evaluate the evidence for effective interventions. Particpants will have the opportunity to practice skills in cognitive-behavioural assessment, increase strategies for engagement and motivation and develop their practice in interventions

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Næring og vökvajafnvægi

Hvenær: 17.04.2012 - 17.4.2012

.

Námskeiðið, sem ætlað er öllum heilbrigðisstéttum, verður boðið í fjarfundi utan höfuðborgarsvæðis ef næg þátttaka fæst.
Skráningarfrestur er til 10. apríl 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

HypnoBirthing®
Teaching women and their birth companions the way to a more comfortable birthing

Hvenær: 24.04.2012 - 27.4.2012

Í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands

Skráningarfrestur er til 27. mars 2012.

Over 25.000 babies have been born to Mothers in the USA and Europe using the HypnoBirthing method.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Health anxiety

Hvenær: 11.05.2012 - 12.5.2012

Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).


Vinnustofan er hluti af námi í hugrænni atferlismeðferð. Kennt er á ensku.

This workshop aims to provide a basic grounding in cognitive-behavioural treatment as applied to health anxiety, (hypochondriasis).

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Álitamál í þróunarsamvinnu og hjálparstarfi á vettvangi

Hvenær: 09.03.2012 - 25.3.2012

í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Rauða krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Námskeiðið fjallar um þróunarsamvinnu, neyðaraðstoð, mannúðarstarf og friðaruppbyggingu. Þátttakendur fá innsýn í störf á vettvangi, stefnur og starfsemi ólíkra stofnana, þátttöku Íslands í verkefnum á þessu sviði og fá að spreyta sig sjálf á krefjandi verkefnum og taka þátt í umræðum.
Fræðslan verður sett í samhengi við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun og hvernig ólík verkefni ólíkra aðila skiptast. Hvatt verður til öflugrar umræðu um hvers kyns álitamál sem eru ofarlega á baugi á þessum vettvangi.

Skráningarfrestur er til 29. febrúar.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Árangursrík liðsheild

Hvenær: 07.03.2012 - 21.3.2012

Á námskeiðinu verður farið yfir aðferðir til að efla liðsheild og auka samstarfsvilja í fyrirtækjum og stofnunum. Það hefur sennilega sjaldan verið mikilvægara en nú, á tímum mikilla og hraðra breytinga í samfélaginu, að hlúa að þáttum sem snúa að samskiptum og samheldni á vinnustöðum.

Skráningarfrestur er til 29. febrúar.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sálgæsla barna og unglinga

Hvenær: 24.02.2012 - 25.2.2012

Markmið námskeiðsins er að veita fólki innsýn inn í sorg barna og unglinga sem og áföll. Einkum verður fjallað um sorg og áföll sem tengjast ytri atburðum sbr. dauðsföllum og skilnuðum og hvaða þættir hafa áhrif á úrvinnslu barna og unglinga.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Frábært námskeið.”
  • ”Mörgum spurningum svarað. Góðar vangaveltur, mjög uppbyggjandi!”
  • ”Vigfús er frábær kennari og kemur öllu til skila á lifandi hátt. Fær 7 af 5 mögulegum.”


Skráningarfrestur er til 17. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig