Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla
Námskeiðið er einkum ætlað fólki er starfar á heilbrigðis- og félagssviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist færni og innsæi á bæði sálræna þætti og tilvistarleg áhrif áfalla á líf skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að nota til að hjálpa þolendum áfalla og aðstandendum sem þurfa að vinna með þungbæra lífreynslu.
Skráningarfrestur er til 4. október 2010.
Skoðuð er mismunandi úrvinnsla áfalla út frá sálgæslu annars vegar og sálfræði hins vegar, og hvernig þessi tvö svið geta unnið saman. Kynntar eru kenningar, fjallað um fræðilegt samhengi milli áfalla og afleiðinga þeirra, skoðuð áhrif áfalla sem skjólstæðingar lenda í og hvernig sú reynsla getur haft áhrif á fagaðila. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu. Áhersla er lögð á hagnýta þjálfun á námskeiðinu og virk þátttaka nemenda er því nauðsynleg.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:
- ”Frábærir kennarar og mjög gott námskeið.”
- ”Vel skipulagt námskeið í alla staði.”
- ”Kærar þakkir fyrir sérstaklega áhugavert og gagnlegt námskeið! Mun nýtast mér óendanlega vel í starfi og í lífinu.”
|
|
Kennsla / umsjón:
Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur og sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur
Hvenær: Þri. 12., 19. og 26. okt kl. 16:15 - 19:15 (3x)
Verð: 23.900 kr.
|