Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynna sér hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.
Skráningarfrestur er til 17. september 2010.
Hugmyndafræðin um sjálfstætt líf nýtur vaxandi fylgis sem leiðarljós í stefnumótun og þjónustu við fatlað fólk bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Hugmyndafræðin byggir á sjónarhorni mannréttinda og félagslegum skilningi á fötlun. Kjarni hennar felst í því að fatlað fólk sé við stjórnvölinn í eigin lífi og ákveði sjálft hvaða þjónustu það fær og hvar, hvenær og hvernig hún er veitt og af hverjum. Á námskeiðinu verður saga hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf rakin og greint frá helstu hornsteinum hennar. Sérstök áhersla verður á notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) og upphaf hennar hér á landi, meðal annars verður sagt frá fyrsta notendastýrða samvinnufyrirtækinu um rekstur NPA. Sjónum verður einnig beint að erlendum fyrirmyndum varðandi þróun og uppbyggingu slíkrar þjónustu og fjallað um hvaða lærdóma má draga af reynslu þeirra sem hafa fengið notendastýrða persónulega aðstoð hér á landi.
Athugið við skráningu!
Skipuleggjendur námskeiðsins leggja áherslu á að það sé aðgengilegt fyrir alla og lagað að þörfum þátttakenda. Því biðjum við þig um að taka fram, í athugasemdareit við rafræna skráningu eða við skráningu í síma, ef eitthvað af neðangreindu á við um þig: - Þarf táknmálstúlk
- Þarf rittúlk
- Þarf námsgögn á stækkuðu letri eða blindraletri
- Þarf námsgögn á auðlesnum texta
- Kem með aðstoðarmann
- Nota hjólastól
- ... eða annað sem skiptir máli að skipuleggjendur viti af.
|
|
Kennsla / umsjón:
Umsjón: Rannveig Traustadóttir, prófessor við HÍ Kennarar: Vilborg Jóhannsdóttir, lektor við HÍ og Freyja Haraldsdóttir, þroskaþjálfi og MA nemi
Hvenær: Lau. 25. sept. kl. 9:00 - 17:00
Verð: 15.900 kr.
|