Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.
Námskeiðið er ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Markmið námskeiðsins er að gera fagfólk hæfara og öruggara í viðtölum við notendur heilbrigðisþjónustunnar og uppfylla þannig faglegar kröfur um hagkvæmni og gildi meðferðarþjónustu.
Farið verður í aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem eru notaðar í viðtölum: Uppbygging viðtals, undirstöðuatriði í hugrænni atferlismeðferð, að skilja og skilgreina vanda (cognitive formulation), notkun Sókratískrar samtalstækni, viðhorf sem hafa áhrif á samtalið, verkefni, æfingar og handleiðsla.
|
|
Kennsla / umsjón:
Agnes Agnarsdóttir, sálfræðingur á geðsviði Landspítala-Háskólasjúkrahúss
Hvenær: Þri. 5. og mið. 6. okt. kl. 9:00-16:00
Verð: 32.900 kr.
|