Menning og sjálfsrækt



 


Haustlaukar

Hvenær: 06.09.2010 - 6.9.2010

Í samstarfi við HORTICUM menntafélag.

Í gróðrastöðvum eru hinir svokölluðu haustlaukar samnefnari fyrir hinar ólíku tegundir jurta sem oft á tíðum blómstra snemma vors og hafa annað hvort lauka eða hnýði sem hægt er að selja í gróðrastöðvum án róta. Túlipanar eru líklega þekktastir haustlauka og þá þekkja flestir, en færri vita að mismunandi yrkishópar hafa mismunandi blómgunartíma, bera kögur eða ekki og eru jafnvel grænir. Sama á við um páskaliljur, allir þekkja þessar gulu, en hversu margir ætli þekki þessar bleiku?

Skráningarfrestur er til 30. ágúst 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Að nýta afrakstur sumarsins

Hvenær: 13.09.2010 - 15.9.2010

Á haustin þarf að koma jarðargróðri í hús. Það heimafengna er að öllu jöfnu bragðbetra og hollara en nokkuð sem hægt er að kaupa. Margir vilja líka forðast aukaefni í matvælum og þá er öruggast að gera sem mest sjálfur. Að hirða um gjafir náttúrunnar treystir fjölskyldubönd og eykur ánægju af útiveru. Villtar íslenskar jurtir búa yfir krafti frá ljósinu og landinu sjálfu. Vísindamenn eru nú í vaxandi mæli farnir að huga að alþýðutrú varðandi jurtir og sannast þá oft á tíðum að hún felur í sér sannleika byggðan á reynslu kynslóðanna.

Skráningarfrestur er til 6. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Enron

Hvenær: 14.09.2010 - 21.9.2010

Í samstarfi við Borgarleikhúsið


Spennandi námskeið í tengslum við leikverkið Enron eftir Lucy Prebble en hún var valin ein af 25 helstu útskýrendum fjármálahrunsins í heiminum af tímaritinu Fortune. Verkið, sem sagt er útskýra fjármálaheiminn á aðgengilegan og einfaldan hátt, sló í gegn á West End síðasta vetur.
Námskeiðið hefst á tveimur fyrirlestrakvöldum og lýkur svo með forsýningu leikverksins og umræðum.
Leikhúsmiðinn er innfalinn í námskeiðsgjaldi.

Skráningarfrestur er til 6. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Úr neista í nýja bók

Hvenær: 15.09.2010 - 13.10.2010

Er draumur þinn að skrifa smásögur eða kannski heila skáldsögu? Ert þú jafnvel með hugmynd að sögu í kollinum? Á þessu námskeiði verður farið yfir ýmis atriði við ritun skáldsagna, allt frá hugmyndavinnu til lokafrágangs. Námskeiðið er ætlað jafnt byrjendum sem og þeim sem lengra eru komnir í skrifum.
Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 7. sept. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Landnáma sexfætlinganna - ógna ný smádýr í íslenskri náttúru?

Hvenær: 20.09.2010 - 27.9.2010

Á námskeiðinu, sem ætlað er öllu áhugafólki um náttúru Íslands, verður fjallað um þær breytingar sem orðið hafa á undanförnum 10-20 árum með fjölda nýrra smádýrategunda sem numið hafa land á Íslandi. Þetta er einn angi af miklum breytingum á lífríki jarðar, sem orsakast af breytingum á veðurfari og öðrum breytingum sem maðurinn hefur valdið á umhverfinu. Suðlægar tegundir eru að færast norður á bóginn, breytingar eru að verða á lífsferlum smádýra og á samspili smádýra við aðra þætti vistkerfa.

Skráningarfrestur er til 13. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Prússland - Ris og fall járnríkis

Hvenær: 27.09.2010 - 11.10.2010

Miðja valdsins í Evrópu færist í austurátt. Hin gamla höfuðborg Prússlands, Berlín, er orðin ein helsta miðstöð vísinda og lista og valds í álfunni. Á námskeiðinu verður fjallað um hina merku og þversagnakenndu sögu Prússlands, konungsríkis sem var stofnað 1701 og lagt niður 1947. Fjallað verður um ríki sem hefur fengið þann dóm að hafa verið vagga herrnaðarhyggju en var samt sem áður frjálslynt menningarríki, skjól upplýsingastefnunnar og eitt fullkomnasta réttarríki álfunnar.

Skráningarfrestur er til 17. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Kvíði barna og unglinga - foreldranámskeið

Hvenær: 27.09.2010 - 11.10.2010

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans


Námskeiðið er ætlað foreldrum og umönnunaraðilum barna og unglinga.

Á námskeiðinu, sem byggir á kenningum og aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, er fjallað um eðli og einkenni kvíða, helstu kvíðaraskanir og æskileg viðbrögð við kvíða barna og unglinga.

Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 17. sept. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda - aðeins í fjarfundi

Hvenær: 28.09.2010 - 5.10.2010

Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.

Vilt þú koma skipulagi á myndirnar þínar með rafrænu myndaalbúmi? Vilt þú fá tækifæri til að geyma myndasafnið þitt á öruggu svæði óháð þinni tölvu eða öðrum tækjabúnaði? Langar þig til að deila myndunum þínum með vinum og ættingjum á einfaldan og öruggan hátt?
Á námskeiðinu kynnist þú þeim möguleikum sem flickr.com býður upp á.

Skráningarfrestur er til 20. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Brennu-Njáls saga

Hvenær: 28.09.2010 - 16.11.2010

Námskeið á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 - 22:15.

Brennu-Njáls saga hefur löngum hrifið lesendur sína með glæsileik, fleygum tilsvörum og fjölþættum mannlýsingum. Engin Íslendingasaga hefur öðlast jafnmikla hylli og unnendur hennar, jafnt almenningur sem fræðimenn, telja að hún sé hátindur íslenskrar sagnalistar. Talið er að sagan hafi verið skráð á árunum 1275-1290 eða stuttu eftir að Sturlungaöld lauk og er Njála eitt mesta snilldarverk evrópskra miðaldabókmennta.

Skráningarfrestur er til 21. sept. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Brennu-Njáls saga

Hvenær: 29.09.2010 - 17.11.2010

Námskeið á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00 - 12:00.

Brennu-Njáls saga hefur löngum hrifið lesendur sína með glæsileik, fleygum tilsvörum og fjölþættum mannlýsingum. Engin Íslendingasaga hefur öðlast jafnmikla hylli og unnendur hennar, jafnt almenningur sem fræðimenn, telja að hún sé hátindur íslenskrar sagnalistar. Talið er að sagan hafi verið skráð á árunum 1275-1290 eða stuttu eftir að Sturlungaöld lauk og er Njála eitt mesta snilldarverk evrópskra miðaldabókmennta.

Skráningarfrestur er til 21. sept. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Frá Vilhjálmi bastarði til Díönu prinsessu

Hvenær: 29.09.2010 - 13.10.2010

Breska konungsættin hefur einstakt lag á að koma sér í fréttir - út af framhjáhaldi og skilnuðum, ef ekki vill betur til. En þessi ætt á sér bráðum þúsund ára sögu, sem spannar allt frá Vilhjálmi bastarði, hertoganum af Normandí, sem lagði undir sig England, og til Hinriks áttunda, sem rauf samband Englendinga við páfagarð svo hann gæti fengið útrás fyrir kvensemi sína - og frá Elísabetu fyrri, meydrottningunni sem gerði landið að stórveldi og til Viktoríu, sem ríkti yfir heimsveldi þar sem sólin hneig aldrei til viðar.

Skráningarfrestur er til 21. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Brennu-Njáls saga

Hvenær: 30.09.2010 - 18.11.2010

Námskeið á fimmtudagskvöldum kl. 20:15 - 22:15.

Brennu-Njáls saga hefur löngum hrifið lesendur sína með glæsileik, fleygum tilsvörum og fjölþættum mannlýsingum. Engin Íslendingasaga hefur öðlast jafnmikla hylli og unnendur hennar, jafnt almenningur sem fræðimenn, telja að hún sé hátindur íslenskrar sagnalistar. Talið er að sagan hafi verið skráð á árunum 1275-1290 eða stuttu eftir að Sturlungaöld lauk og er Njála eitt mesta snilldarverk evrópskra miðaldabókmennta.

Skráningarfrestur er til 21. sept. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Úr heimi leiksviðslistanna

Hvenær: 04.10.2010 - 25.10.2010

Er leiklistin sprottin upp úr helgisiðum og iðkun trúarbragða? Hvers vegna er kór í grískum harmleikjum? Hvernig gat kaþólska miðaldakirkjan bæði verið á móti leiklistinni og með henni? Hvers vegna voru engar leikmyndir í leikhúsi Shakespeares? Hvaðan koma fjarvíddarleiksviðið og leiksviðsramminn? Hver er hinn dularfulli Harlekin? Fóru átjándualdarmenn aðallega í leikhúsið til að gráta? Hví hefur nítjánda öldin verið kölluð öld hinna miklu leikara?
Þetta eru dæmi um nokkrar þeirra spurninga sem upp koma þegar við hverfum á vit liðinna kynslóða leikara, leikskálda - og áhorfenda.

Skráningarfrestur er til 27. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Wagner og Rínargullið

Hvenær: 04.10.2010 - 11.10.2010

Í hugum margra er tónlist þýska tónskáldsins Richard Wagners ein sú þyngsta og óaðgengilegasta sem um getur. Á þessu námskeiði verður stefnt að því að fella þessa goðsögn með því að svara þeim mörgu spurningum sem vakna þegar líf og tónlist Wagners er annars vegar.
Að fyrirlestrum loknum munu þátttakendur sjá og heyra beina útsendingu á Rínargullinu frá Metropolitan óperunni. Námskeiðinu lýkur með umræðukvöldi.

Innifalið í námskeiðsverði er miði á beina útsendingu frá Metropolitan óperunni.

Skráningarfrestur er til 28. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Vönduð íslenska: Að skrifa gott íslenskt mál

Hvenær: 06.10.2010 - 20.10.2010

Ætlað þeim sem vilja auka kunnáttu sína og færni við að rita gott íslenskt mál. Farið er yfir helstu hjálpargögn íslenskra málnotenda. Dæmi eru tekin um gott og slæmt málfar svo sem beygingar, orðasambönd og stíl. Farið er yfir ýmis sératriði í ritreglum og algengar villur. Þátttakendur fá í hendur vandaða ritaskrá og fleiri gögn og leysa ýmis heimaverkefni.

Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 28. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Myndaalbúm og miðlun stafrænna ljósmynda

Hvenær: 12.10.2010 - 19.10.2010

Vilt þú koma skipulagi á myndirnar þínar með rafrænu myndaalbúmi? Vilt þú fá tækifæri til að geyma myndasafnið þitt á öruggu svæði óháð þinni tölvu eða öðrum tækjabúnaði? Langar þig til að deila myndunum þínum með vinum og ættingjum á einfaldan og öruggan hátt?
Á námskeiðinu kynnist þú þeim möguleikum sem flickr.com býður upp á.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Súkkulaði ... matur guðanna

Hvenær: 18.10.2010 - 18.10.2010

Súkkulaði hefur stundum verið kallað “matur guðanna” (e. food of the gods) í erlendum ritum. Vissulega hafa margir dálæti á súkkulaði, en færri hafa þó kynnt sér almennilega bakgrunn þess og áhrif á heiminn.
Námskeiðinu er ætlað að gera erlendri og hérlendri sögu súkkulaðis skil. Einnig verður hlutverk súkkulaðis í trúarbrögðum, ást og menningu tíundað. Jafnframt verður þessi merkilega matvara skoðuð nánar ...........

Skráningarfrestur er til 8. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Innlit í kínverskan samtíma

Hvenær: 19.10.2010 - 9.11.2010

Í samstarfi við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós


Kína samtímans mætti lýsa sem blöndu sterkrar hefðarhyggju og stórfelldra breytinga. Á þessu námskeiði verður hrært í þessari blöndu í því skyni að varpa ljósi á kínverska menningu og samfélag samtímans. Hvaða hlutverk leikur söguleg vitund í kínverskri sjálfsmynd í dag? Hvaða helstu áskoranir mæta Kínverjum í samtímanum og nánustu framtíð? Hver er gróskan í skapandi listum Kínverja?

Skráningarfrestur er til 11. okt. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Blásarasveitir - sagan, marsarnir og listin

Hvenær: 20.10.2010 - 3.11.2010

Blásarasveitir ýmiskonar hafa verið til frá alda öðli, en hlutur þeirra í tónlistarsögunni er engu að síður harla rýr. Á þessu námskeiði rekur Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld og stjórnandi, sögu þessa oft á tíðum vanmetna tónlistarforms. Hann ræðir hinar ýmsu birtingarmyndir blásarasveita, kynnir tónlistina með sérstakri áherslu á marsinn og hvernig þjóðarsálin birtist í þessari sígrænu tónlist.

Skráningarfrestur er til 12. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Alpujarras - Best geymda leyndarmál Spánar?

Hvenær: 20.10.2010 - 27.10.2010

Flestir ferðamenn sem fara til Spánar leita á rómaðar sólarstrendurnar eða til menningarborga á borð við Barcelona og Madríd. Fæstir þekkja hins vegar landsvæði sem lúrir í hrikalegu landslagi suðurhlíða Sierra Nevada fjallgarðsins í Andalúsíu og nefnist Alpujarras.
Hrafnhildur Hagalín og Pétur Jónasson hafa búið á Spáni í mörg ár, m.a. í 99 manna þorpi á Alpujarras-svæðinu um tveggja ára skeið. Á þessu námskeiði fjalla þau um sérkenni héraðsins, sögu, menningu, matargerð og lifnaðarhætti íbúanna.

Skráningarfrestur er til 12. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Leikritun

Hvenær: 26.10.2010 - 23.11.2010

Leikritunarnámskeið Hlínar Agnarsdóttur hlaut mikið lof þátttakenda í vor og gefst nú fleirum tækifæri til að spreyta sig með skriffærin að vopni.

Umsagnir ánægðra þátttakenda:

  • ”Frábært námskeið!”
  • ”Meira svona - ég vil framhaldsnámskeið! ”
  • ”Gaman!”

Skráningarfrestur er til 18. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sagan í Gamla testamentinu

Hvenær: 26.10.2010 - 16.11.2010

Allir þekkja Abraham og Ísak, Móse, Davíð konung og Salómon. Eða hvað? Hversu vel þekkjum við þá sögu Gyðingaþjóðarinnar sem rakin er í Gamla testamentinu? Illugi Jökulsson tekur sér fyrir hendur að rifja upp þá mikilfenglegu sögu sem Biblían geymir, og setur hana í samhengi við sögu annarra ríkja fyrir Miðjarðarhafsbotni í fornöld. Það er spennandi og æsileg saga í sjálfu sér. En jafnframt rekur Illugi nýjustu rannsóknir fræðimanna sem hafa leitast við að sanna eða afsanna frásagnir Gamla testamentisins.

Skráningarfrestur er til 18. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Úr neista í nýja bók - framhaldsnámskeið

Hvenær: 27.10.2010 - 24.11.2010

Námskeiðin "Að skrifa fyrir börn og unglinga" og "Úr neista í nýja bók," þar sem Anna Heiða Pálsdóttir leiðbeinir þátttakendum um ýmislegt varðandi ritlistina, meðal annars hvar sé gott að leita hugmynda, hvernig skuli rita samtöl og hugsanir, að skipuleggja smásögu eða heila bók, o.fl., hafa verið mjög vinsæl á undanförnum árum. Áhugasamir nemendur hafa sóst eftir framhaldi, þar sem þeir fá að feta sig framar á ritvellinum, læra meiri tækni og þjálfa sig í skrifum.

Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 20. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sjónmál náttúrunnar

Hvenær: 01.11.2010 - 15.11.2010

Hvað eiga myndir eftir Cézanne og David Hockney sameiginlegt? Liggja þræðir á milli hollenskrar 17. aldar landslagslistar og verka samtímalistamannsins Richard Long? Eru tengsl milli Ólafs Elíassonar og J.M.W. Turners? Eða frönsku fauvistanna og Ellsworth Kelly? Á námskeiðinu verður leitast við að varpa ljósi á samband myndlistar og náttúru með hliðsjón af heimsmynd hverju sinni, allt frá tímum ítalskrar endurreisnar til tæknilegrar fjölbreytni samtíðarinnar.

Skráningarfrestur er til 18. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Húmor og hugsun í verkum Milans Kundera

Hvenær: 01.11.2010 - 8.11.2010

Meðal helstu höfundareinkenna Milans Kundera, eins vinsælasta skáldsagnahöfundar samtímans, er það hvernig hann beitir húmor til að dýpka og stækka persónur sínar og viðfangsefni. Á námskeiðinu verður farið í þessa lykilþætti, einkum með vísan í tvær bækur, skáldsöguna Kveðjuvalsinn og ritgerðasafnið Kynni, sem er jafnframt nýjasta bók hans.
Leiðbeinandinn, Friðrik Rafnsson, hefur þýtt allar skáldsögur Kundera á íslensku og fjallað um þær víða í ræðu og riti, bæði hérlendis og erlendis.

Skráningarfrestur er til 22. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Íran

Hvenær: 08.11.2010 - 22.11.2010

Félagarnir, Ali Amoushahi og Jón Björnsson, munu á þriggja kvölda námskeiði kynna þátttakendum sögu Írans, landshagi og menningu. Írans er oft getið í fréttum og þá í þannig samhengi að það gleymist hve þar er rótgróin og litrík menning, stórbrotin saga og merkileg og vingjarnleg þjóð. Áður hefur verið fjallað um núverandi stjórnmálaástand í Íran á námskeiðum Endurmenntunar en hér verður um almenna kynningu á landi og þjóð að ræða. Hluti námskeiðsins fer fram á ensku með snörun yfir á íslensku.

Skráningarfrestur er til 1. nóv.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Íslensk stafsetning og greinamerkjasetning í hnotskurn

Hvenær: 17.11.2010 - 1.12.2010

Námskeiðið er ætlað öllum sem þurfa að dusta rykið af stafsetningarreglum og reglum um greinarmerki en hvorar tveggja vilja vefjast fyrir manni við dagleg störf. Kenndar eru helstu ritreglur, bæði stafsetning og greinarmerki. Þær eru byggðar á gildandi auglýsingum menntamálaráðuneytisins og endurskoðun starfsfólks Íslenskrar málstöðvar frá 2006.

Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 9. nóv. 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Í ofviðrum sálarinnar: Lér konungur og Ofviðrið eftir William Shakespeare á sviðum Þjóðleikhúss og Borgarleikhúss

Hvenær: 17.11.2010 - 11.1.2011

Í samstarfi við Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið


Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur flytja nú um jólin tvö af frægustu leikritum William Shakespeares, Lé konung og Ofviðrið.
Af þessu tilefni standa leikhúsin sameiginlega að námskeiði um leikritin og uppfærslurnar. Á námskeiðinu, sem er í umsjón Jóns Viðars Jónssonar, verður fjallað um William Shakespeare, rýnt í verkin, baksvið þeirra og stöðu meðal annarra verka skáldsins.
Leikhúsmiðar á báðar sýningar eru innfaldir í námskeiðsgjaldi.

Skráningarfrestur er til 9. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Víti, fjandinn og illskan

Hvenær: 24.01.2011 - 14.2.2011

Síðustu misseri fjallaði hinn margrómaði Jón Björnsson um engla á námskeiðum sínum hjá Endurmenntun og hlutu þau mikið lof þátttakenda. Áhugasvið Jóns nær hins vegar víðar en til himna og ætlar hann nú að ræða, á fjögurra kvölda námskeiði, um víti, fjandann og illskuna.
Á námskeiðinu verður, í hæfilegri alvöru, fjallað um uppruna og athafnir fjandans, fylgihyskið sem hann hefur sér til aðstoðar við að afvegaleiða hið breyska mannkyn og þróun og skipulag Helvítis. Einu kvöldi verður síðan varið til þess að fjalla í fullri alvöru um tilvist og eðli illskunnar.

Skráningarfrestur er til 17. janúar 2011.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Eystrasalt

Hvenær: 09.03.2011 - 23.3.2011

Að Eystrasaltinu liggja níu lönd sem frá ómunatíð hafa átt samskipti sín á milli. Jón Björnsson hefur farið eftir ströndum Eystrasaltsins undanfarin ár og gerir á þriggja kvölda námskeiði grein fyrir því sem við bar. Til tals koma helluristurnar, ísöldin og fyrsta byggð, víkingatíminn og Austurvegur, Jómsborg, rúnasteinarnir, eyjarnar, Runeberg, Hansasambandið, Norðurlandastríðið mikla, raf, finnsku stríðin, Thomas Mann, endalausir birkiskógar, Kalevala og krossferðirnar sem ekki einungis voru farnar til landsins helga heldur líka norður á bóginn til að kristna síðustu heiðingjana í Evrópu.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig