Námskeið fyrir stjórnendur

 


 


Ég, verkefnastjórinn

Hvenær: 14.09.2010 - 21.9.2010


UPPSELT. Búið er að setja upp aukanámskeið.

Ætlað stjórnendum, hópstjórum og verkefnastjórum í fyrirtækjum og stofnunum. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig hægt er með hagnýtum hætti að greina, forgangsraða og hrinda í framkvæmd brýnustu verkefnum hverju sinni.

Takmarkaður sætafjöldi. Skráningarfrestur til 6. september.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Skemmtilegt verkefni”
  • ”Áhugavert námskeið, kennari mjög góður”
  • ”Persónuleikapróf mjög áhugavert og án efa gagnlegt þegar þarf að setja saman verkefnahóp”

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Starfsmannasamtöl og frammistöðumat

Hvenær: 14.09.2010 - 15.9.2010

Ætlað stjórnendum og millistjórnendum með mannaforráð.
Starfsmannasamtöl geta verið gagnlegt verkfæri í þróun mannauðsstjórnunar fyrirtækja ef þau eru vel undirbúin og þeim fylgt eftir. Þátttakendur fá æfingu í undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni starfsmannasamtala. Skráningarfrestur er til 6. september.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Vel heppnað námskeið, veitir mér innsýn í hvað felst í starfsmannaviðtölum. Greinilegt að góður undirbúningur er mjög mikilvægur til að ná ákjósanlegum árangri. Dregur úr kvíða mínum.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Ég, verkefnastjórinn - aukanámskeið -

Hvenær: 16.09.2010 - 23.9.2010

Ætlað stjórnendum, hópstjórum og verkefnastjórum í fyrirtækjum og stofnunum. Á námskeiðinu er fjallað um hvernig hægt er með hagnýtum hætti að greina, forgangsraða og hrinda í framkvæmd brýnustu verkefnum hverju sinni.

Takmarkaður sætafjöldi. Skráningarfrestur til 8. september.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Skemmtilegt verkefni”
  • ”Áhugavert námskeið, kennari mjög góður”
  • ”Persónuleikapróf mjög áhugavert og án efa gagnlegt þegar þarf að setja saman verkefnahóp”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Stjórnun breytinga
- hlutverk stjórnenda og þáttur starfsmanna

Hvenær: 07.10.2010 - 28.10.2010

Námskeiðið er hugsað fyrir alla stjórnendur sem vilja auka við þekkingu sína í tengslum við innleiðingu og stjórnun breytinga. Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan skilning á stjórnun breytinga og geti leitt breytingar í fyrirtækjum og stofnunum.

Skráningarfrestur er til 29. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Ég, stjórnandinn

Hvenær: 08.10.2010 - 16.11.2010

Ætlað stjórnendum og millistjórnendum í fyrirtækjum og stofnunum. Fjallað er um mikilvæga þætti sem snerta starf stjórnenda sem bera ábyrgð á starfsmönnum og verkefnum, og auk þess að taka þátt í mótun fyrirtækja eða stofnanna.

Skráningarfrestur til 4. október.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Flott námskeið - gaman og gagnlegt að vera með fólki úr ólíkum fyrirtækjum”
  • ”Mjög gott námskeið. Fékk það sem ég óskaði eftir”
  • ”Frábært námskeið, fræðandi og gefandi á allan hátt.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Samtalstækni - viðkvæm starfsmannamál

Hvenær: 12.10.2010 - 19.10.2010

Ætlað stjórnendum. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að auka færni stjórnenda í að ræða viðkvæm mál við starfsmenn. Kennsla fer fram með fyrirlestrum, hópverkefnum og verklegum æfingum. Takmarkaður sætafjöldi. Skráningarfrestur til 4. október.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Frábært námskeið”
  • ”Góð áminning og skemmtilegar umræður í tíma”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Fíknisjúkdómar starfsmanna - viðbrögð og vinnureglur -

Hvenær: 21.10.2010 - 4.11.2010

Ætlað stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja og stofnanna. Námskeiðið nýtist einnig náms- og starfsráðgjöfum auk forvarnarfulltrúum í grunn- og framhaldsskólum. Námskeiðið er byggt upp á þremur fyrirlestrum auk vinnustofu í lok námskeiðs til að fylgja eftir verkefnum og reynslu. Lögð er áhersla á hagnýtar upplýsingar, aðferðir og umræður. Takmarkaður sætafjöldi.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Siðareglur, fagmennska og traust

Hvenær: 27.10.2010 - 27.10.2010

Í samstarfi við Siðfræðistofnun


Námskeiðið er ætlað stjórnendum og millistjórnendum og er hugsað fyrir þá sem eru leiðandi í uppbyggingu trausts og faglegra vinnubragða hjá fyrirtækjum og stofnunum. Ein. FLE: 4 Siðareglur og fagleg gildi.

Skráningarfrestur er til 19. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Starfsmannastefna, gildi og fyrirtækjamenning

Hvenær: 03.11.2010 - 10.11.2010

Ætlað stjórnendum, millistjórnendum og starfsmannastjórum. Á námskeiðinu, sem er þríþætt, verður farið ítarlega í markmið og tilgang starfsmannastefnu, mikilvægi gilda og þátt menningar í fyrirtækjum og stofnunum. Námskeiðið er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu.

Skráningarfrestur er til 26. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Hrós, hvatning og jákvæð endurgjöf

Hvenær: 18.11.2020 - 18.11.2010

Ætlað stjórnendum, millistjórnendum og starfsmannastjórum. Fjallað er um forystuhlutverk leiðtogans í samskiptum við starfsfólk og leiðir til að hrósa, hvetja og veita samstarfsfólki jákvæða endurgjöf. Takmarkaður sætafjöldi. Skráningarfrestur er til 10. nóvember.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Frábært námskeið og Steinunn skemmtileg og lífleg”
  • ”Gott námskeið”
  • ”Fær 4,95 af 5 mögulegum”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig