Námskeið í fjarfundi
Hjá Endurmenntun er fjölbreytt framboð námskeiða sem eru send út í gegnum fjarfundarbúnað. Með því gefst íbúum á landsbyggðinni tækifæri til að sækja námskeiðin í sinni heimabyggð. Námskeiðin eru eingöngu ætluð þátttakendum í fjarfundi sem er nýbreytni hjá Endurmenntun.
Endurmenntun er með samstarfssamning við Kvasi, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva um námskeið í fjarfundi. Námskeiðin eru send út í rauntíma sem gerir þátttakendum kleift að taka þátt í umræðum.
Skráning og upplýsingagjöf fer fram hjá Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum - sjá upplýsingar um þær hér. Skráningarfrestur er að jafnaði tíu dögum fyrir upphaf námskeiðs.
Starfsmenn stofnana og fyrirtækja sem eiga fjarfundarbúnað skrá sig beint hjá Endurmenntun í síma 525 4444.