Ítalska II

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa sótt námskeiðið “Ítalska fyrir byrjendur” eða hafa grunnþekkingu í ítalskri málfræði og tjáningu. Markmið námskeiðisins er að hjálpa nemendum að tjá sig í daglegum samskiptum

 

Áhersla verður lögð á daglegt líf og athafnir eins og samræður í tengslum við að versla, mat, ferðalög og afþreyingu svo dæmi séu tekin. Samfara þessu verður málfræði skoðuð og þá sérstaklega þátíð (imperfetto, passato prossimo), skildagatíð, afturbeygðar sagnir, eignarlýsingarorð ofl.

Forsenda námkeiðs fyrir nemendur er ítalska fyrir byrjendur eða grunnþekking í ítalskri málfræði (nafnorð, greinar, lýsingarorð, helstu reglulegu sagnir og óreglulegu sagnirnar fare, avere, essere, stare, chiamarsi, sapere, conoscere, piacere) ásamt grunnþekkingu í almennri tjáningu (kynningum á milli fólks og kynningu á stöðum).

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Kennari: Maurizio Tani, stundakennari í ítölsku við HÍ.


Hvenær:

Þri. og fim. 26. okt. - 16. nóv kl. 17:00-19:00 (7x)

 

 

Verð: 39.500 kr.

 

[Til baka]