Kínverska fyrir byrjendur
Í samstarfi við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós
Kínverska er töluð af tæplega fimmtungi heimsins og þykir sífellt eftirsóknarverðari kunnátta með auknu vægi Kína í heiminum. Þótt vissulega megi finna fjölmargar kínverskar mállýskur er stöðluð kínverska (mandarín eða putonghua) alls staðar gjaldgeng í Kína og raunar víða annars staðar. Þetta námskeið veitir inngang að þessu heillandi tungumáli.
Skráningarfrestur er til 20. sept. 2010
Nemendur öðlast grundvallarþekkingu á málinu, færni í framburði og læra að tjá sig með einföldum hætti um hagnýt efni. Einnig verða kínversk tákn kynnt til sögunnar.
|
|
Kennsla / umsjón:
Jón Egill Eyþórsson, M.A. í kínverskum málvísindum frá Hangzhou háskóla
Hvenær: Mán. og fim. 27. sept. - 28. okt. kl. 20:15-22:15 (10x)
Verð: 32.900 kr.
|