Verk- og tæknifræði, arkitektúr og umhverfi


 


Misturslökkvikerfi

Hvenær: 26.01.2012 - 26.1.2012

Undanfarna áratugi hafa kröfur um brunaöryggi vaxið og þar með um uppsetningu slökkvikerfa. Oft á tíðum eru slökkvikerfin mikil og plássfrek, en í misturkerfi eru pípukerfin mun minni að vöxtum en í hefðbundnum slökkvikerfum og taka minna pláss frá öðrum mikilvægum lögnum.

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Ljósbogahættur í dreifikerfum

Hvenær: 10.02.2012 - 10.2.2012

UPPSELT er á þetta námskeið sem hefst 10. febrúar. Haldið verður aukanámskeið sem hefst 24. febrúar. Sjá hér

Námskeiðið er ætlað tæknifólki, verkfræðingum, tæknifræðingum eða öðrum þeim sem vilja fræðast um ljósbogahættur í há- og lágspenntum dreifikerfum. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er koma að hönnun, uppbyggingu og rekstri öflugra dreifikerfa. Takmarkaður sætafjöldi.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Evrópski stálstaðallinn EN 1993

Hvenær: 14.02.2012 - 14.2.2012

Í samstarfi við Austurlandsdeild Verkfræðingafélags Íslands og Austurlandsdeild Tæknifræðingafélags Íslands

Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir tilurð stálstaðalsins, tilgangi Evrópustaðlanna, uppbyggingu og stöðu stálstaðalsins í evrópsku staðlafjölskyldunni.

Skráningarfrestur er til 8. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Ljósbogahættur í dreifikerfum

Hvenær: 24.02.2012 - 24.2.2012

Námskeiðið er ætlað tæknifólki, verkfræðingum, tæknifræðingum eða öðrum þeim sem vilja fræðast um ljósbogahættur í há- og lágspenntum dreifikerfum. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim er koma að hönnun, uppbyggingu og rekstri öflugra dreifikerfa. Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 17. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Tilboðs og áætlanagerð

Hvenær: 03.03.2012 - 9.5.2012

Í samvinnu við Matsmannafélag Íslands.

Markmiðið með námskeiðinu er að kynna ítarlega alla þá þætti við mat á byggingarkostnaði sem nauðsynlegir eru til þess að reikna út tilboð í verklegar framkvæmdir.
Skráningarfrestur er til og með 24. febrúar 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Evrópski timburstaðallinn EN 1995

Hvenær: 29.03.2012 - 29.3.2012

Á námskeiðinu verður fjallað um Evrópustaðla um hönnun timburmannvirkja, sérstaklega ÍST EN 1995-1-1:2004 með seinni tíma viðbótum og þjóðarviðauka.

Skráningarfrestur er til 22. mars 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Nýr Evrópustaðall um hönnun steinsteypuvirkja: ÍST EN 1992-1-1:2004 (Eurocode 2)

Hvenær: 26.04.2012 - 26.4.2012

Á námskeiðinu verður fjallað um nýja steinsteypustaðalinn Eurocode 2, það er ÍST EN 1992-1-1:2004, ásamt tilheyrandi þjóðarviðauka.

Skráningarfrestur er til 19. apríl 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Árangursrík liðsheild

Hvenær: 07.03.2012 - 21.3.2012

Á námskeiðinu verður farið yfir aðferðir til að efla liðsheild og auka samstarfsvilja í fyrirtækjum og stofnunum. Það hefur sennilega sjaldan verið mikilvægara en nú, á tímum mikilla og hraðra breytinga í samfélaginu, að hlúa að þáttum sem snúa að samskiptum og samheldni á vinnustöðum.

Skráningarfrestur er til 29. febrúar.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Stjórnun og leiðtogahæfni

Hvenær: 16.04.2012 - 30.4.2012

Námskeiðið er ætlað stjórnendum og er byggt upp á þremur þáttum: Í fyrsta hluta námskeiðsins er rætt um mikilvægi breytinga fyrir viðgang skipulagsheilda og skoðaðar kenningar um breytingastjórnun. Í öðrum hluta verður hugað að hópum og í þriðja hluta námskeiðsins er athyglinni beint að leiðtoganum sjálfum og færni hans.

Ummæli ánægðra þátttakenda:

  • ”Góður kennari, vel skipulagt, gagnlegt. Gott viðmót”
  • ”Skemmtilegar tilvísanir, breið nálgun á viðfangsefninu. Hefur unnið sem stjórnandi. Hef aldrei áður gefið betri umsögn um kennara!”
  • ”Mjög gott námskeið - lífleg og skemmtileg framsetning”

Skráningarfrestur er til 9. apríl 2012.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig