Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli
Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.
Fjallað er um almenn skilyrði og undirbúning skimunar með Talnalykli. Á námskeiðinu er jafnframt fjallað um mikilvæg hugtök í skimun, ítarlega greiningu og kennslu eða þjálfun. Kynntar eru reglur við skimun og ný viðmið í hóp- og einstaklingsprófum talnalykils. Þessi viðmið byggjast á gögnum sem höfundar prófsins hafa safnað á undanförnum árum. Lögð er áhersla á að þjálfa ákvarðanatöku í skimun með prófinu, hvenær eigi að vísa í ítarlega greiningu og hvenær ekki. Rætt er um nákvæmni skimunar með Talnalykli.
|
|
Kennsla / umsjón:
Einar Guðmundsson, prófessor við HÍ og Guðmundur Arnkelsson, dósent við HÍ
Hvenær: Námskeiðið er 6 klst. og er kennt frá kl. 9:00 - 16:00. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig. Starfsmaður Endurmenntunar hefur samband við alla skráða þátttakendur um leið og dagsetning liggur fyrir, með a.m.k. 10 daga fyrirvara.
Verð: 24.500 kr.
|