Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS

Nám í kynfræði er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námið er í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi, samkvæmt reglum hverrar deildar. Hvert námskeið er til 10 ECTS eininga. Hægt er að taka öll námskeiðin sem heild en einnig stök námskeið.

 

Nemendur skulu hafa lokið BS, BA, BEd námi. Námið er einkum ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis-, og uppeldisvísinda s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.


Markmið náms í kynfræði eru m.a. að nemendur:

- Öðlist fræðilega þekkingu á hugtökum, hugmyndafræði, kenningum, viðfangsefnum og aðferðum kynfræða.
- Kynnist nýjustu rannsóknum um kynheilbrigðismál.
- Geti nýtt fræðilega þekkingu sína og skilning á kynfræði ásamt tjáskiptafærni í faglegri nálgun í starfi.
- Búi yfir þekkingu og færni til að fræða skjólstæðinga og aðra um kynlíf.
- Hafi víðtæka vitneskju um vandamál og viðfangsefni, fræðileg sem hagnýt, byggð á nýjustu rannsóknum í kynfræði.
- Geri sér grein fyrir eigin gildismati og viðhorfum til kynferðismála.
- Geti áttað sig á nýjungum og þróun á sviði kynfræða sem byggist á vísindalegum grunni.


Kennsla fer fram í fyrirlestraformi og umræðum. Gert er ráð fyrir lotukennslu og möguleika á e-mission upptökum. Þannig er fagfólki í starfi innan sem utan Reykjavíkur auðveldað að geta nýtt sér námið. Að kennslunni koma bæði innlendir og erlendir fræðimenn á sviði kynfræðinnar.

Nemendur innan Háskóla Íslands:
Skáning fer fram í gegnum Ugluna.

Fagfólk sem ekki er skráð til náms í Háskóla Íslands:
Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda utan HÍ. Nemendur sem sækja um námskeið hjá EHÍ eru vinsamlega beðnir um að láta viðeigandi prófskírteini fylgja með umsókn.
Upplýsingar um námskeið:

Kynverund og siðfræði. - Námskeiðið er hafið á vormisseri 2012.

Samtími og kynlíf - Haustmisseri 2012
Umsóknarfrestur er til 13. ágúst 2012.

Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa - Vormisseri 2013
Umsóknarfrestur er til 7. desember 2012.

Frekari upplýsingar veitir Jóhanna Rútsdóttir, verkefnastjóri Endurmenntunar, í síma 525-5292.

 

Sækja um

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Umsjón með námskeiðunum hafa:
Sólveig A. Bóasdóttir, dósent í guðfræði- og trúarbragðafræðideild hefur umsjón með námskeiðinu Kynverund og siðfræði. Er kennt á vormisseri 2012.
Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjafardeild hefur umsjón með námskeiðinu Samtími og kynlíf. Kennt næst á haustmisseri 2012.
Sóley S. Bender, prófessor í hjúkrunarfræðideild hefur umsjón með námskeiðinu Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa. Kennt næst á vormisseri 2013.


Hvenær:

.

 

 

Verð: Nánar auglýst síðar.

 

 

[Til baka]