Leiðsögunám á háskólastigi - einnig kennt í fjarnámi (Haust 2010)
Leiðsögunám á háskólastigi er námsbraut fyrir þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Námsbrautin hefst í ágúst 2010 og lýkur í lok júní 2011 Námið býðst hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi.
Inntökuskilyrði í námið eru: - Stúdentspróf eða sambærileg menntun. - Gott vald á íslensku. - Fullt vald á því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn. Standast þarf inntökupróf í tungumálinu. Enn er tekið við umsóknum.
Námið er viðurkennt sem aukagrein með ferðamálfræði svo og á hugvísindasviði Háskóla Íslands.
Megináhersla er lögð á hagnýta þekkingu á sviði leiðsagnar með ferðamenn. Námið er 60 eininga nám (ECTS) á grunnstigi háskóla og er kennt á tveimur misserum. Kennd er ein námsgrein í senn sem lýkur með prófi og/eða verkefni áður en sú næsta hefst.
Námið miðar að því að nemendur: - Geri sér grein fyrir eðli og starfsemi ferðaþjónustu á Íslandi, ólíkum hópum og væntingum ferðamanna, ímynd lands og þjóðar ásamt þýðingu atvinnugreinarinnar fyrir þjóðarbúið.
- Kunni skil á hlutverki og ábyrgð leiðsögumanns og þjálfist í hópstjórn og samskiptum við ferðamenn og aðila í ferðaþjónustu.
- Hafi haldgóða þekkingu á helstu þáttum náttúrufars Íslands og geti miðlað þeirri þekkingu til ferðamanna.
- Þekki sögu og menningu Íslands ásamt þróun íslensks samfélags og geti miðlað helstu þáttum til ferðamanna.
- Þjálfist í skipulagðri miðlun fróðleiks við hæfi á völdu tungumáli og öðlist um leið aukinn sérhæfðan orðaforða sem tengist sögu, menningu og náttúru Íslands.
Í lok náms fá þeir nemendur sem lokið hafa öllum námskeiðum skírteini sem vottar þátttöku og frammistöðu í náminu. Leiðsögupróf frá Endurmenntun Háskóla Íslands veitir rétt á fagfélagsaðild í Félagi leiðsögumanna.
Umsagnir fyrrum nemenda:
"Námið fór langt fram úr mínum væntingum. Kennarar voru úr fremstu röð íslenskra fræðimanna og mátti glögglega sjá að þar var valið af kostgæfni. Það var svo gaman að mér fannst slæmt að missa stundum úr tíma, en það kom ekki að sök því námið er líka kennt í fjarnámi." Íris Sveinsdóttir, útskrifaðist í febrúar 2010
"Fjölbreytnin í náminu er afar mikil og spannar land, sögu og menningu frá upphafi til okkar tíma og einnig er farið vel í alla þjóðfélagshætti." Ása Kristín Jóhannsdóttir, útskrifaðist í febrúar 2010
"Námið var hverrar krónu virði - verst að því skyldi ljúka." Finnur P. Fróðason, útskrifaðist í febrúar 2010
Nánari lýsing
|
|
Kennsla / umsjón:
Verkefnastjóri námsins er Sara Þórunn Óladóttir, netfang: st@hi.is, sími: 525-5293.
Hvenær: Kennsla fer fram tvisvar í viku kl. 16:10-19:55. Þar fyrir utan fer fram talþjálfun í smærri hópum sem hittast reglulega á hvoru misseri.
Verð: 595.000 kr.
|