Fjölskyldumeðferð - Nám á meistarastigi
Í samstarfi við Félagsráðgjafadeild HÍ, Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð og Rannsóknarstofu í barna-og fjölskylduvernd.
Námið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólanámi í heilbrigðis- eða félagsvísindum og starfa á sviði fjölskylduþjónustu, fræðslu, stuðnings og meðferðar. Krafist er þriggja ára grunnmenntunar á háskólastigi (t.d. BA) á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða annarar sambærilegrar menntunar. Auk þess skulu umsækjendur: - Hafa tveggja til þriggja ára starfsreynslu á sviðinu - Hafa verið í handleiðslu og/eða eigin meðferð - Vera starfandi á sviðinu á meðan á námi stendur - Hafa samþykki yfirmanns og/eða stofnunar til að stunda námið samhliða starfi og nota efnivið úr starfi
Allir umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði verða boðaðir í viðtal.
Kynningarfundur miðvikudaginn 30. maí kl. 17:15 að Dunhaga 7 Umsóknarfrestur er til 4. júní 2012.
Markmið námsins er að koma til móts við þörfina fyrir sérhæfða þekkingu á sviði fjölskyldumeðferðar og að efla fjölskyldunálgun í félags- og heilbrigðisþjónustu. Fjölskyldumeðferð er meðferð þar sem tekið er mið af áhrifamætti fjölskylduheildarinnar og velferð hennar höfð að leiðarljósi. Þessi skilgreining byggist á hugmyndinni um fjölskyldu sem kerfi og vitund um að þegar einstaklingur breytist hefur það áhrif í fjölskyldutengslunum og öfugt, að hver einstaklingur verður fyrir áhrifum af því sem gerist í lífi annarra í sömu fjölskyldu eða tengslaneti. Það er metið eftir aðstæðum og í samráði hvenær og hverjir taka beinan þátt í meðferðinni.
Í náminu öðlast nemendur fræðilega og hagnýta þekkingu í fjölskyldufræðum ásamt klíniskri færni.
Að loknu námi munu nemendur meðal annars hafa: - Þekkingu á fræðilegri þróun fjölskyldumeðferðar og kenningagrunni - Persónulega og faglega færni til að veita fjölskyldumeðferð - Geta beitt faglegri þekkingu í gagnvirkri (reflective) greiningar- og meðferðarvinnu - Færni til að finna lausnamunstur í samskiptakerfum - Þekkingu á þróun íslenskra fjölskyldna og aðstæðum þeirra í dag - Innsýn í rannsóknarniðurstöður um lýðheilsu (health statistics) og fjölskylduheilbrigði (family health)
Námið er lánshæft hjá LÍN.
Umsögn frá núverandi nemenda
"Námið hefur fyllilega staðist allar mínar væntingar og meira en það bæði vegna þess hve vel hefur tekist að samþætta fræðilega kennslu, klínisk námstækifæri og handleiðslu. Nemendahópurinn var hæfilega fjölmennur og samanstóð af reynslumiklu fagfólki úr hinum ýmsu greinum sem hefur gefið náminu enn meiri breidd og dýpt. Það er ótrúlega gefandi og lærdómsríkt að kynnast á þennan nána hátt ólíkum starfsháttum, viðhorfum og gildum samnemenda. Reglubundin handleiðsla í litlum hópum þar sem áherslan var á klínisk viðfangsefni sem og leshópar nemenda var líka eitt af því sem upp úr stendur hvað námstækifæri varðar. Námið í heild hefur verið afar krefjandi en svo sannarlega vel þess virði og er nú þegar að nýtast mér mun betur og víðtækar en ég átti von á."
Vilborg G. Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur deildarstjóri barna- og unglingageðdeildar BUGL
Nánari lýsing
|
|
Kennsla / umsjón:
Kennarar verða bæði innlendir og erlendir háskólakennarar og starfandi fjölskyldufræðingar (fjölskylduþerapistar). Kennslustjóri námsins er Helga Þórðardóttir, félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Alda Elísdóttir, verkefnastjóri í síma 525-5296 og netfangi gae@hi.is.
Hvenær: Námið nær yfir fjögur misseri.Námið verður skipulagt í reglulegum námslotum og unnið verður með fræðileg og klínisk verkefni á milli lota. Nemendur verða í samfelldri hóphandleiðslu í litlum hópum á meðan á náminu stendur, þar sem unnið er með efnivið úr starfi á vettvangi. Ekki verður um val milli námskeiða að ræða og allir nemendur fylgja sama skipulagi.
Verð: Nánar auglýst síðar.
|