Gjafabréf fyrir fróðleiksfúsa


Gjafabréf Endurmenntunar er þekkingarbréf sem opnar dyr að spennandi heimi fræðslu og fróðleiks hvort sem áhuginn liggur í tónlist, heimspeki, bókmenntum, ferðalögum, tungumálum, sjálfsrækt, stjórnun, starfsþróun og svo mætti lengi telja. 


Gjafabréfið er tilvalin gjöf eða styrkur við hin ýmsu tækifæri s.s. til afmælis- eða jólagjafa hvort sem er frá einstaklingum eða fyrirtækjum. Gjöfin getur verið tiltekið námskeið eða upphæð að eigin vali.


Gjafabréfin fást í afgreiðslu Endurmenntunar að Dunhaga 7 og eru einnig afgreidd í síma 525 4444.