Greiðsluskilmálar og greiðslukjör


Ef greitt er með greiðslukorti við skráningu á heimasíðu Endurmenntunar verður skuldfært af korti greiðanda um það leyti sem námskeið hefst. Að öðrum kosti eru greiðsluseðlar sendir til þátttakenda.


Á ákveðnum námskeiðum getur EHÍ óskað eftir fyrirframgreiðslu námskeiðsgjalda.


Ef óskað er eftir að námskeiðsgjaldi sé skipt niður vinsamlegast hafið samband við gjaldkera í síma 525 5295 eða 525 4949.


Athugið að námskeiðsgjaldið mun innheimt að fullu ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með tölvupósti til Endurmenntunar á netfangið endurmenntun@hi.is að minnsta kosti tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.


Endurmenntun áskilur sér rétt til að innheimta 5.000 kr. í umsýslugjald vegna þeirra sem afboða sig fyrir fyrrgreind tímamörk.


Heimilt er að senda annan þátttakanda í stað þess sem forfallast.

Vinsamlegast látið okkur vita um allar breytingar með eins góðum fyrirvara og unnt er.


Námsbrautir Endurmenntunar


Við upphaf náms er gefinn út reikningur fyrir heildarverði námsins. Þeir sem ekki staðgreiða þurfa að semja um greiðslumáta strax. Hægt er að greiða með Visa láni eða staðgreiðsluláni Mastercard til allt að 36 mánaða. Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi hætti námi áður en námstíma lýkur.


Eininganámskeið á grunn- og meistarastigi



Námskeiðin þarf að greiða fyrirfram eða um leið og umsókn hefur verið samþykkt af fagráði.


Hætti umsækjandi við að sækja námskeiðið eftir að umsókn hefur verið samþykkt, er innheimt 15.000 kr. umsýslugjald.

Ef umsækjandi hættir við þátttöku eftir að námskeiðið er hafið, er námskeiðsgjald innheimt að fullu.



Námskeið - afsláttarkjör


Einstaklingar

Allir sem náð hafa 67 ár aldri sem og öryrkjar fá 10% afslátt af verði námskeiða í flokknum Menning og sjálfsrækt.

Einstaklingur sem sækir fimm eða fleiri námskeið á sama misseri fær 20% afslátt.

Fyrirtæki

Fyrirtæki sem skráir fimm eða fleiri þátttakendur á námskeið fær 20% afslátt.

Hægt er að leita tilboða um afsláttarkjör ef um stærri hópa er að ræða.

Almennt


Aðeins er hægt að nýta ein afsláttarkjör á hvert námskeið.


Í einstaka tilfellum er Endurmenntun umboðsaðili fyrir námskeið og í þeim tilfellum gilda ofangreind afsláttarkjör ekki.


Endurmenntun býður reglulega önnur afsláttarkjör á sérvalin námskeið og er það auglýst á heimasíðu okkar.


Mörg stéttarfélög og fagfélög veita námskeiðsstyrki og hvetjum við fólk til að kanna það hjá sínu félagi.


Endurmenntun áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef ekki næst nægur þátttakendafjöldi eða ef aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður skapast.