Hagnýtar upplýsingar fyrir þátttakendur



Staðfesting á skráningu

Skráður þátttakandi sem forfallast eða hættir af einhverjum ástæðum við að sækja námskeið þarf að tilkynna forföll til Endurmenntunar í síma, með tölvupósti eða símbréfi með minnst tveggja daga fyrirvara. Fyrirtækjum stendur þó til boða að senda annan starfsmann í stað þess sem forfallast. Vinsamlegast látið okkur vita um allar breytingar með eins góðum fyrirvara og unnt er. Athugið einnig að skráningarfrestur er á sum námskeið.


Athugið að námskeiðsgjaldið mun innheimt að fullu ef skráður þátttakandi hættir við að sitja námskeið, en hefur ekki tilkynnt forföll með tölvupósti til Endurmenntunar á netfangið endurmenntun@endurmenntun.is að minnsta kosti tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.



Staðsetning og námsgögn
Námskeið eru jafnan haldin í húsnæði Endurmenntunar, að Dunhaga 7. Við byrjun hvers námskeiðs þurfa þátttakendur að gefa sig fram í móttöku Endurmenntunar þar sem mæting er skráð og námsgögn afhent.Sé námskeið ekki haldið í húsi Endurmenntunar eru þátttakendur látnir vita sérstaklega og fá þá afhent námsgögn á viðkomandi stað.

Skírteini
Við lok hvers námskeiðs fá þátttakendur afhent skírteini til staðfestingar þátttöku. Skírteini eru þó aðeins afhent þeim sem sækja minnst 80% kennslustunda.

Mat á námskeiði
Við lok hvers námskeiðs eru þátttakendur beðnir að meta námskeiðið á þar til gerðum eyðublöðum. Niðurstöðurnar eru nýttar til að bæta námskeiðahald og þjónustu Endurmenntunar HÍ.