Jóhann Ingi Gunnarsson
Sálfræðingur
Jóhann Ingi er sálfræðingur. Hann lauk BA-prófi í sálfræði árið 1982 og embættisprófi í sálarfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi. Jóhann Ingi rekur eigin sálfræði- og ráðgjafarstofu í Garðabæ ásamt Sæmundi Hafsteinssyni. Hann starfaði lengi sem handknattleiksþjálfari og þjálfaði fremstu félög Þýskalands um sjö ára skeið. Einnig þjálfaði hann íslenska landsliðið um tíma. Jóhann Ingi hefur starfað mikið við ráðgjöf í fyrirtækjum og haldið samskiptanámskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir bæði hér á landi og erlendis. Hann hefur kennt hjá Endurmenntun HÍ í mörg ár.
|