Álfheiður Steinþórsdóttir
Sálfræðingur
Álfheiður Steinþórsdóttir lauk embættisprófi í sálfræði við háskólann í Uppsölum í Svíþjóð 1975. Hún starfaði fyrst við Kleppsspítala, frá 1975-1979. Hún var sálfræðingur við Félagsmálastofnun Reykjavíkur frá 1979-1983 og sálfræðingur við Foreldraráðgjöfina frá 1979-1983. Álfheiður sat í barnaverndarráði Íslands 1979-1983.Hún varð sérfræðingur í klíniskri sálfræði 1992 og lauk 2ja ára meðferðarnámi í hugrænni atferlismeðferð 2001.Hún hefur unnið klíniskar rannsóknir og meðdómarastörf fyrir dómstóla á Íslandi.Álfheiður hefur ritað bækur og fjölda greina um sálfræðileg efni auk þess að gegna kennslu, fræðslu og nefndarstörfum.Frá 1983 hefur hún verið í fullu starfi við Sálfræðistöðina ásamt Guðfinnu Eydal. Þar vinnur hún við meðferð og ráðgjöf fullorðinna ásamt ýmiskonar námskeiðshaldi.
|
|