Guðfinna Eydal
Sálfræðingur barnavernd
Guðfinna Eydal lauk embættisprófi í sálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1975.Hún starfaði fyrst sem sálfræðingur við sálfræðideild skóla í Reykjavík 1976-1978.Hún hefur verið sérfræðingur í klínískri sálfræði frá 1992 og hefur auk ýmissa kennslustarfa unnið við Foreldraráðgjöfina 1979-1983 og við rannsóknir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur 1981-1982.Guðfinna hefur setið í Barnaverndarráði Íslands 1979-1983 og frá 1991 til dagsins í dag. Auk þess hefur hún starfað sem meðdómari fyrir dómstóla.Guðfinna hefur ritað bækur og fjölda greina um sálfræðileg efni.Frá 1983 hefur hún verið í fullu starfi við Sálfræðistöðina ásamt Álfheiði Steinþórsdóttur. Þar vinnur hún við meðferð og ráðgjöf fullorðinna ásamt ýmiskonar námskeiðahaldi.
|