Haukur Ingi Jónasson
Prestur, sálgreinir
Haukur Ingi lauk cand. theol. prófi frá Háskóla Íslands 1994 og S.T.M. og M.Phil. prófum frá Union Theological Seminary /Columbia University í New York og stundar þar Ph.D. nám. Hann stundaði klínískt nám í sálgæslu (CPE) við The HealthCare Chaplaincy og Lennox Hill Hospital í New York og lauk klínísku námi í sálgreiningu frá The Harlem Family Institute í New York 2001. Haukur Ingi hefur margvíslega reynslu og starfar sem ráðgjafi, sálgreinir og fyrirlesari í Reykjavík.
|
|