Bjarni Frímann Karlsson

 

Bjarni Frímann er lektor í viðskipta- og hagfræðideild. Bjarni Frímann á 10 ára háskólanám að baki. Hann nam íslensku og sagnfræði við Háskóla Íslands á árunum 1970 til 1973 og lauk þaðan BA prófi 1973. Á árunum 1979 - 1981 lagði Bjarni Frímann stund á uppeldis- og kennslufræði við Kennaraháskóla Íslands og fékk kennararéttindi á grunn- og framhaldsskólastigi vorið 1982. Þá lauk Bjarni Frímann cand. oecon. prófi í viðskiptafræði með reikingshald og endurskoðun sem sérsvið, frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, vorið 1992. Bjarni Frímann lauk MPM prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum í Odense í Danmörku árið 1998. Meistararitgerð hans fjallaði um innkaup sveitarfélaga, skrifuð undir handleiðslu John Chriestensen, prófessors í reikningshaldi og upplýsingatækni. Auk þess hefur Bjarni Frímann sótt ýmis námskeið, þar á meðal tvö námskeið í stjórnsýsluendurskoðun (Value of Money Auditing). Bjarni Frímann hefur verið stundakennari í viðskipta- og hagfræðidield allt frá árinu 1998.

 

Námskeið:


[Til baka]