Ingjaldur Hannibalsson
Ingjaldur er prófessor við Háskóla Íslands. Hann lauk BS-prófi í eðlisfræði og stærðfræði frá Háskóla Íslands og MS- og Ph.D. prófum í iðnaðarverkfræði frá The Ohio State University. Ingjaldur var deildarstjóri tæknideildar FÍ 1978-1983, forstjóri Iðntæknistofnunar 1983-1986, forstjóri Álafoss 1986-1987 og framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands 1988-1993. Ingjaldur hefur kennt við Háskóla Íslands frá 1978, fyrst í verkfræði- og raunvísindadeild en síðan í viðskipta- og hagfræðideild.
|
|