Bragi Skúlason

Sjúkrahúsprestur Prestur

 

"Bragi Skúlason er fæddur 1957. Hann lauk cand. theol. prófi frá H.Í. 1982 og kennsluréttindum frá H.Í. 1983. Hann starfaði sem sóknarprestur í fríkirkjunni í Hafnarfirði, í söfnuði Vestur-Íslendinga í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og í Vestmannaeyjum. Hann lauk sérnámi í sálgæslu í Minneapolis 1987 og hóf störf á Landspítala háskólasjúkrahúsi 1989 og hefur starfað þar síðan. Hann fór í starfstengt nám í fjölskylduvinnu og fjölskyldumeðferð hjá Endurmenntunarstofnun H.Í. 1995-1997 og lauk meistaraprófi frá guðfræðideild H.Í. 2004 með verkefnið ""Ekklar á Íslandi 1999-2001"". Hann hefur skrifað bækur og greinar á íslensku og ensku um sorg, sálgæslu, líknarmeðferð og karlafræði og hefur staðið fyrir miklum fjölda námskeiða og fyrirlestra um sömu efni."

 

Námskeið:


[Til baka]