Vilt þú kenna hjá Endurmenntun?


Endurmenntun Háskóla Íslands er ár hvert með mikinn fjölda styttri námskeiða fyrir almenning og fagfólk. Í gegnum tíðina hafa fjölmargir sérfræðingar komið að kennslunni, sem er í takt við þá stefnu að endurskoða og þróa stöðugt námsframboð. Kennsla hjá Endurmenntun hefur verið eftirsótt og ýmsir sérfræðingar sem flagga kennslureynslu sinni hjá okkur á ferilskrá sínum.


Starfsfólk Endurmenntunar er stöðugt á höttunum eftir nýjum kennurum og hugmyndum að spennandi námskeiðum. Við hvetjum alla sem telja sig hafa góðar hugmyndir að sækja um kennslu hjá okkur.


Umsókn um kennslu á námskeiðum