Á haustmisseri 2017 hefjast fjölmargar námsbrautir hjá okkur í Endurmenntun og þar af eru nokkrar í fjarnámi.
Fjarnámið fer fram á netinu og því getur hver og einn skipulagt sinn tíma sjálfur. Hver kennslustund er tekin upp og upptakan birt á samskiptavef. Þátttaka er því hvorki háð búsetu né fjarfundarbúnaði.
Á GRUNNSTIGI HÁSKÓLA
Leiðsögunám á háskólastigi - staðnám eða fjarnám
Nám til löggildingar fasteigna- og skipasala - staðnám eða fjarnám
Ökukennaranám til almennra réttinda
NÁMSLÍNUR ÁN EININGA
Viðurkenndur bókari - staðnám eða fjarnám
Fjármál og rekstur - staðnám eða fjarnám
Umsóknarfrestur er til 5. júní og eru þeir sem hafa hug á að stunda fjarnám beðnir um að taka það sérstaklega fram í umsókn.
Margar námsbrautir hjá Endurmenntun eru lánshæfar hjá Framtíðinni námslánasjóði og einstaka námsbrautir hjá LÍN.