Við vorum að gefa út tvo nýja bæklinga um námskeið á vormisseri.
Fróðleikur og skemmtun
Bæklingurinn okkar Fróðleikur og skemmtun inniheldur námskeið á sviði menningar, persónulegrar hæfni og tungumála. Í honum kynnum við með stolti rúmlega sextíu námskeið.
Fyrir starfið
Starfstengdi bæklingurinn Fyrir starfið inniheldur fjölbreytt námskeið sem eru á dagskrá í janúar og febrúar. Síðar á misserinu kemur út annar bæklingur með námskeiðum sem eru á dagskrá í mars, apríl og maí.
Fáðu bæklinga senda heim
Áhugasamir geta einnig fengið bæklingana senda heim að dyrum. Sendu okkur línu á netfangið endurmenntun@hi.is eða hringdu í síma 525 4444 og við setjum bæklingana í póst.
Smella á námskeiðsheiti
Athugið að þegar þeir eru skoðaðir rafrænt er hægt að smella á námskeiðsheiti og þá lendir þú inn á viðkomandi námskeiði á vefsíðunni okkar.